Sjöundi deildarsigurinn í röð hjá Barcelona

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
Lionel Messi.
Lionel Messi. Getty/Joan Valls
Barcelona kom sér aftur í fimm stiga forystu á toppi La Liga deildarinnar á Spáni með öruggum sigri á Leganes í kvöld.

Ousmane Dembele kom Börsungum yfir eftir um hálftíma leik með frábæru skoti, viðstöðulausu eftir sendingu Jordi Alba, fyrir utan teig. Boltinn fór af stönginni og inn, algjörlega óverjandi.

Heimamenn fóru því með eins marks forystu inn í hálfleikinn en það voru gestirnir í Leganes sem skoruðu næsta mark. Youssef En Nesyri sendi boltann á Martin Braithwait sem var kominn í auðvelt færi og þurfti ekki mikið að hafa fyrir því að jafna leikinn.

Luis Suarez kom Börsungum aftur yfir á 71. mínútu og Lionel Messi tryggði sigur Barcelona með þriðja markinu í uppbótartíma.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira