Lífið

Bragðgóðir og hollir réttir

Elín Albertsdóttir skrifar
Bulgur er brotið hveiti sem líkist kúskús.
Bulgur er brotið hveiti sem líkist kúskús.

Bulgur eru brotið hveiti sem er lagt í bleyti í sjóðandi vatn líkt og kúskús. Bulgur eru mjög gott með fiski eða kjúklingi. Hér eru frábærir léttir réttir sem öllum ætti að líka við á janúarkvöldi.

Bulgursalat með kjúklingabringum

Rétturinn er miðaður við fjóra.

200 g bulgur

4 kjúklingabringur

1 msk. smjör til steikingar

1 fennel

6 vorlaukar

5 sólþurrkaðir tómatar í olíu

3 msk. smátt söxuð steinselja

10 svartar ólífur

2 msk. jómfrúarolía

30 g heslihnetur

Setjið bulgur í sjóðandi vatn eins og stendur á umbúðum. Kælið.

Kryddið kjúklingabringurnar með salti og pipar. Steikið á pönnu á meðalhita í tvær mínútur á hvorri hlið. Leggið þá lok á pönnuna og eldið áfram í 6-8 mínútur.

Skerið fennel og vorlauk smátt og saxið sólþurrkaða tómata. Setjið í skál ásamt bulgur, steinselju og blandið öllu saman. Skerið kjúklingabringurnar í sneiðar og raðið fallega ofan á salatið. Það er hægt að sleppa kjúklingnum í þessum rétti og vera með soðin egg í helmingum í staðinn.

Kjúkling er hægt að matbúa á ótal vegu og alltaf verða til nýir réttir.

Spænskur kjúklingur

Þessi réttur er með kjúklingabaunum og ólífum. Hann er súper einfaldur og er góður með hrísgrjónum, kúskús eða bulgur.

8-12 kjúklingalæri

2 rauðlaukar

6 hvítlauksrif

200 g hakkaðir tómatar

200 g kjúklingabaunir án vatns

Grænar ólífur

Ólífuolía

Paprikuduft, salt og pipar

Hitið ofninn í 200°C. Dreifið ólífuolíu í stórt eldfast form. Leggið kjúklingabitana í formið og vætið þá aðeins í olíunni á báðum hliðum. Látið skinnhliðina snúa upp. Skerið laukinn smátt niður og raðið í kringum kjúklingabitana. Kryddið yfir með paprikudufti og bragðbætið með salti og pipar.

Setjið í heitan ofn og eldið í 30 mínútur. Takið þá formið út og takið kjúklinginn upp úr. Setjið tómatana út í kjötsafann ásamt pressuðum hvítlauk og hrærið saman. Bætið við salti og pipar ef þarf. Raðið kjúklingnum aftur í formið og deilið kjúklingabaunum og ólífum yfir. Formið er sett aftur inn í ofninn. Eldið áfram í 15 mínútur eða þar til kjúklingurinn er fulleldaður.

Kjúklingur í rjómasósu er vinsæll hjá allri fjölskyldunni. Bæði er hægt að hluta niður heilan kjúkling í slíkan rétt eða nota kjúklingabringur eða úrbeinuð læri.

Franskur kjúklingaréttur

Uppskriftin miðast við fjóra. Æðislegur kjúklingaréttur þar sem gott dijon-sinnepsbragðið fær að njóta sín. Þetta er afar einfaldur réttur og auðvelt að laga. 

500 g úrbeinuð kjúklingalæri

200 g perlulaukar

Smjör til steikingar

½ tsk. þurrkað timían

1 tsk. þurrkað estragon

½ tsk. múskat

2 msk. dijon sinnep

2 dl bjór

3 dl rjómi

Salt

Nýmalaður pipar

Ferskt estragon til skreytingar í lokin

Kjúklingurinn er bragðbættur með salti og pipar. Brúnið kjúklinginn með lauk í smjöri og olíu á pönnu. Bætið við kryddi sem er talið upp og sinnepi. Þá er bjórinn settur saman við og suðan látin koma upp. Loks er rjóminn látinn út í og allt látið malla í um það bil 15 mínútur eða þar til sósan hefur þykknað örlítið.

Kjúklinginn má bera fram með kartöflum, bulgur eða hrísgrjónum eftir smekk.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×