Enski boltinn

Stutt í að Martial framlengi við United

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
Anthony Martial
Anthony Martial vísir/getty
Anthony Martial nálgast samkomulag við Manchester United um nýjan langtímasamning við félagið. Samningaviðræðurnar höfðu verið við það að sigla í strand fyrr í vetur.

Sky Sports greinir frá því í kvöld að Martial sé nálægt því að skrifa undir nýjan fimm ára samning við Rauðu djöflana, þremur mánuðum eftir að hann hafnaði samningstilboði frá félaginu.

United virkjaði eins árs framlengingarklásúlu á dögunum sem bindur Martial á Old Trafford til 2020.

Franski framherjinn hefur skoraði níu mörk fyrir Untied á tímabilinu og forráðamenn United hafa lengi haft það ofarlega á forgangslistanum að semja við Martial áfram.

Martial kom til United frá Mónakó árið 2015 og var þá dýrasti táningur heims.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×