Enski boltinn

Trent Alexander-Arnold framlengir

Dagur Lárusson skrifar
Trent hæstánægður með nýja samninginn.
Trent hæstánægður með nýja samninginn. vísir/getty
Trent Alexander-Arnold hefur skrifað undir nýjan langtímasamning við Liverpool en sá samningur mun halda honum hjá félaginu til ársins 2024.

 

Trent hefur farið hamförum í liði Liverpool síðastliðna árið undur Jurgen Klopp og er nú algjör lykilmaður og var hann t.d. í byrjunarliði Liverpool í úrslitaleik Meistaradeildarinnar á síðasta ári.

 

Liverpool er greinilega staðráðið í því að halda sínum ungu og efnilegum leikmönnum en í gær tilkynntu þeir það einnig að Andrew Robertson væri búinn að framlengja samning sinn við félagið.

 


Tengdar fréttir

Robertson framlengdi til fimm ára

Skoski varnarmaðurinn Andy Robertson skrifaði í dag undir framlengingu á langtímasamningi sínum við Liverpool.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×