Erlent

Trump setur fram málamiðlunartillögu til þess að binda enda á lokun alríkisstofnana

Vésteinn Örn Pétursson skrifar
Donald Trump Bandaríkjaforseti er tilbúinn að falla frá andstöðu sinni við úrræði fyrir innflytjendur og flóttafólk, fái hann að reisa múr á landamærum Bandaríkjanna og Mexíkó.
Donald Trump Bandaríkjaforseti er tilbúinn að falla frá andstöðu sinni við úrræði fyrir innflytjendur og flóttafólk, fái hann að reisa múr á landamærum Bandaríkjanna og Mexíkó. Alex Wong/Getty
Donald Trump Bandaríkjaforseti hélt rétt í þessu ávarp þar sem hann lagði fram nýjar hugmyndir um hvernig hægt væri að brúa þá gjá sem hefur myndast milli Repúblikana og Demókrata í Bandaríkjaþingi vegna fjárveitingafrumvarpa, þar sem helsta deiluefnið er fjárveiting til byggingar múrs á landamærum Bandaríkjanna og Mexíkó.

Staðan í þinginu hefur valdið því að um þriðjungur alríkisstofnana Bandaríkjanna hafa verið án fjármagns í rúmlega fjórar vikur og hafa þeir 800 þúsund starfsmenn sem lokunin hefur áhrif á annað hvort verið í launalausu leyfi eða unnið án kaups síðan lokunin skall á 22. desember síðastliðinn. Lokunin er sú lengsta í sögu Bandaríkjanna en fyrir það var metið 21 dagur, frá desember 1995 fram í janúar 1996, í stjórnartíð Bills Clinton.

Tillögur Bandaríkjaforseta, sem eru nýjasta útspil hans til þess að fá Demókrata til að samþykkja fjárveitingu til múrsins upp á 5,7 milljarða Bandaríkjadala eða rúma 693 milljarða króna, snúa meðal annars að því að innflytjendur sem falla undir svokallað DACA-úrræði, það eru innflytjendur sem komu til Bandaríkjanna sem börn á ólöglegan hátt, muni áfram njóta úrræðis sem gerir þeim kleift að vinna í Bandaríkjunum án ríkisborgararéttar.

Trump hefur hingað til verið mótfallinn slíkum úrræðum en sagðist reiðubúinn að framlengja það um þrjú ár verði fé veitt til múrsins umtalaða. Um 700 þúsund manns búa nú og starfa í Bandaríkjunum í skjóli DACA.

Þá sagðist Trump einnig tilbúinn að framlengja tímabundið verndarúrræði fyrir flóttafólk, TPS, um þrjú ár. Það úrræði nær til um 300 þúsund einstaklinga sem flýja hafa þurft heimalönd sín til Bandaríkjanna vegna stríðsátaka eða náttúruhamfara. Trump hefur, líkt og með DACA, verið andstæðingur þessa úrræðis fram að þessu.

Hingað til hafa Demókratar, sem náðu í síðustu kosningum meirihluta í fulltrúadeild þingsins, harðneitað að samþykkja nokkuð frumvarp sem inniheldur áform um að veita fjármunum til byggingar landamæramúrsins. Þá hefur Trump neitað að skrifa undir nokkuð frumvarp sem ekki gerir ráð fyrir múrnum.

Ekki er útlit fyrir að Demókratar fallist á þessar tillögur forsetans en áður en hann flutti ræðu sína í kvöld sagði Nancy Pelosi, leiðtogi Demókrata í fulltrúadeild þingsins, í yfirlýsingu að fyrstu frásagnir af áformum forsetans sýndu greinilega að tillögur hans væru „samansafn af nokkrum hugmyndum sem þegar hafi verið hafnað, sem hvert fyrir sig væru óásættanleg og að saman bæru þær engan vott um viðleitni til þess að endurheimta stöðugleika í líf fólks.“


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×