Körfubolti

Fjórða dóttirin á leiðinni hjá Kobe Bryant

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Kobe Bryant umkringdur konunum í lífi sínu og nú er ein stelpan í viðbót á leiðinni.
Kobe Bryant umkringdur konunum í lífi sínu og nú er ein stelpan í viðbót á leiðinni. Vísir/Getty
NBA goðsögnin Kobe Bryant er að verða faðir í fjórða sinn á þessu ári en strákurinn lætur þó enn bíða eftir sér.

Kobe Bryant og kona hans Vanessa sögðu frá því á Instagram að þau séu að fara eignast dóttur á árinu 2019. Kobe Bryant sagði frá því að það væri önnur „mambacita“ á leiðinni hjá þeim.





Þau Vanessa eiga saman dæturnar Nataliu, Giannu og Bianku. Natalia er fimmtán ára (2003), Gianna er tólf ára (2006) og Bianka er tveggja ára (2016).

Kobe og Vanessa hafa verið gift frá árinu 2001 en þau kynntust árið 1999.

Kobe Bryant hélt upp á fertugsafmælið sitt í ágúst síðastliðnum en kona hans er fjórum árum yngri en hann.

Bryant lék í tuttuugu tímabil í NBA-deildinni, varð fimm sinnum NBA-meistari með Los Angeles Lakers og er þriðji stigahæsti leikmaður allra tíma.

Á tuttugu árum í NBA komst hann átján sinnum í stjörnuleikinn, fimmtán sinnum í eitt af liðum ársins og tólf sinnum í varnarlið ársins.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×