Viðskipti innlent

Viðskiptavinir Toys R' Us hvattir til að nýta gjafabréf „meðan það er hægt“

Stefán Ó. Jónsson skrifar
Fyrsta verslun Toys R' Us á Íslandi opnaði á Smáratorgi árið 2007.
Fyrsta verslun Toys R' Us á Íslandi opnaði á Smáratorgi árið 2007. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Enn liggur ekkert fyrir um framtíð verslana Toys R' Us á Íslandi. Eins og Vísir greindi frá fyrir áramót fór hið danska móðurfélag verslananna, Top Toy, í þrot í liðinni viku en félagið rak hundruð Toys R' Us-verslana á Norðurlöndunum. Afdrif þeirra eru óljós en sterklega er talið að þeim verði öllum lokað á næstunni.

Sigurður Þórir Jónasson, verslunarstjóri Toys R' Us á Smáratorgi, segir í samtali við Ríkisútvarpið að engin skilaboð hafi enn borist að utan. Því muni starfsfólk Toys R' Us, sem rekur þrjár verslanir hér á landi, halda sínu striki. Starfsmennirnir eru um þrjátíu talsins að sögn Sigurðar.

Sjá einnig: Móðurfélag Toys R' Us á Íslandi gjaldþrota

Verslanirnar þrjár, á Smáratorgi, í Kringlunni og á Akureyri, verði því að minnsta kosti opnar í dag. Síðustu birgðasendingarnar að utan hafi borist á milli jóla og nýárs en alla jafna sé lítið um leikfangasendingar til landsins í janúar.

Viðskiptavinir Toys R' Us á Íslandi voru hvattir til að nýta gjafabréf sín í verslununum, „meðan það er hægt,“ eins og sagði í Facebook-færslu íslensku verslananna. „Athugið þó að þrátt fyrir mögulega lokun gilda venjulegar skilareglur,“ sagði þar ennfremur. Færsluna má sjá hér að neðan.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×