Innlent

Bjarni úthrópaður af stuðningsmönnum Báru

Jakob Bjarnar skrifar
Bjarni Ben og Bára en stuðningsmenn hans eru afar ósáttir við það að hann skuli vera orðinn leiður á Kaustur-málinu.
Bjarni Ben og Bára en stuðningsmenn hans eru afar ósáttir við það að hann skuli vera orðinn leiður á Kaustur-málinu. visir/vilhelm
Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra lýsti því yfir í Kryddsíldinni að hann væri orðinn hundleiður á þessu Klausturmáli. Það kom vitaskuld til tals í umræðum leiðtoga stjórnmálaflokkanna sem eiga fulltrúa á þingi og sitt sýndist hverjum. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson formaður Miðflokksins hélt sig við það að hann hafi setið fjölda slíkra funda þar sem talað væri illa um kollega í pólitíkinni og víðar. Bjarni vildi ekki sverja slíkt af sér en vísaði því á bug að allir pólitískir fundir hans væru því marki brenndir, það væri af og frá.

Þessi skoðun hans, með að vera kominn með leið á Klaustur-málinu, fellur í afar grýttan jarðveg í sérstökum stuðningsmanni uppljóstrarans Báru Halldórsdóttir, en rekja má tilurð hópsins til þess að fólki ofbauð fúkyrðaflaumur sexmenninganna þingmannanna sem sátu á Klaustur bar og töluðu illa um mann og annan. Bára tók ósköpin upp og var kjörin maður ársins í kjölfarið í kosningu sem fram fór á Vísi.

Freki kallinn Bjarni

Sigríður Júlía Bjarnadóttir tekur málið upp í Facebook-hópnum „Takk Bára“. „Mikið finnst mér ósmekklegt hjá Bjarna Ben. í kryddsíldar þættinum að segjast vera orðin „leiður“ á Klausturmálinu,“ segir Sigríður Júlía og með fylgir tákn um að henni þyki þetta leitt. „Hvað segir þetta um manninn?“

Ljóst er að flestir meðlimir hópsins þeir sem til máls taka eru hjartanlega sammála Sigríði Júlíu og fær Bjarni það óþvegið í athugasemdum:

„Ekki eins leiður og við erum á honum,“ segir einn og annar bætir við: „Bjarni setti niður við þessi ummæli. Þar gaf hann í skyn að þetta væri nú ekkert tiltökumál að tala svona. Þarna skín freki kallinn í gegn hjá vatnsgreiddum valdamanninum.“



Hroki.is

Því er haldið fram að Bjarni hafi aldrei verið í sambandi við raunveruleikann og að svona munnsöfnuður sé honum sennilega eðlilegur. En, helst eru þeir á því sem leggja orð í belg að Bjarni sé „hrokagikkur“ en hér eru fáein dæmi: „Hallærilegur bara. Hroki.is“

„Siðblinda, hann skilur ekki alvarleika málsins.“

„Þetta er náttúrulega bara fífl og eigin hagsmunafýr.“

„Greyið, hann verður aldrei neitt meira en Icehot1.“

„Siðblindur hrokagikkur og sjálfselskur frekjuhundur.“


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×