Lífið

PewDiePie minnist Stefáns Karls í einu vinsælasta YouTube-myndbandi frá upphafi

Kristín Ólafsdóttir skrifar
PewDiePie, sem heitir réttu nafni Felix Kjellberg, og Stefán Karl Stefánsson.
PewDiePie, sem heitir réttu nafni Felix Kjellberg, og Stefán Karl Stefánsson. Mynd/Samsett
YouTube-stjarnan PewDiePie minnist leikarans Stefáns Karls Stefánssonar í myndbandi sem er orðið það vinsælasta á vefsíðunni frá upphafi ef talið er í notendum sem stutt hafa á „like“-hnappinn.



Myndbandið er eins konar yfirlit yfir það sem bar helst á YouTube árið 2018 og var birt á rás PewDiePie, sem heitir réttu nafni Felix Kjellberg, þann 27. desember síðastliðinn. Um er að ræða túlkun PewDiePie sjálfs á hinu svokallaða „YouTube Rewind“, eða Youtube-endurliti, sem framleitt hefur verið á hverju ári síðan 2010.

Sjá einnig: Stærsta YouTube-stjarna heims á Íslandi: PewDiePie og kærastan kolféllu fyrir landinu

Mikil óánægja greip um sig innan YouTube-samfélagsins vegna endurlitsins í ár en það þótti ekki fanga hinn sanna anda síðunnar nægilega vel. Þannig hafi stjórnendur YouTube t.d. gert Hollywood-stjörnum og tónlistarmönnum hátt undir höfði en hundsað raunverulega notendur síðunnar á borð við PewDiePie, Shane Dawson og Logan Paul. Myndbandið hefur nú hlotið þann vafasama heiður að vera það óvinsælasta í sögu YouTube en þegar þetta er ritað hafa um 15 milljón notendur ýtt á „dislike“-takkann.

Endurlit PewDiePie hefur hins vegar hlotið öllu betri viðtökur og kennir þar ýmissa grasa. Hann tekur fyrir vinsæla notendur síðunnar og myndbönd sem vöktu athygli á árinu. Þá minnist hann einnig merkra einstaklinga sem létust á árinu, þar á meðal Stefáns Karls sem lést í ágúst 43 ára að aldri eftir langvinna baráttu við krabbamein.

Minningarhluti myndbandsins hefst á mínútu 3:20. Auk Stefáns Karls eru fjórir einstaklingar teknir fyrir: plötusnúðurinn Avicii, myndasagnafrömuðurinn Stan Lee, Stephen Hillenburg, höfundur þáttanna um Svamp Sveinsson, og eðlisfræðingurinn Stephen Hawking.

Stefán Karl naut mikilla vinsælla á Internetinu en yfir milljón notendur eru áskrifendur að YouTube-rás hans. Þá varð hann að óvæntri netstjörnu árið 2016 þegar milljónir horfðu á svokölluð „meme“ af honum í gervi Robbie Rotten, hins bandaríska Glanna Glæps úr Latabæ.

PewDiePie er vinsælasta YouTube-stjarna heims en hann státar af um 80 milljónum áskrifenda á síðunni. Þá hefur endurlitsmyndband hans nú fengið flest „like“ af öllum YouTube-myndböndum sem ekki teljast til tónlistarmyndbanda en þegar þetta er ritað hafa 6,8 milljón notendur líkað við myndbandið.

Hér að neðan má svo sjá hið opinbera, og umdeilda, YouTube-endurlit fyrir árið 2018.


Tengdar fréttir

Þessir Ís­lendingar kvöddu á árinu 2018

Margir þjóðþekktir Íslendingar kvöddu þennan heim á árinu sem senn er á enda, þar á meðal einn ástsælasti leikari þjóðarinnar, heimsfrægt tónskáld, fyrrverandi ráðherra og eitt fremsta ljóðskáld þjóðarinnar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×