Viðskipti innlent

Afskráðu ePóst án samþykkis

Jóhann Óli Eiðsson skrifar
Ingimundur Sigurpálsson forstjóri Íslandspósts.
Ingimundur Sigurpálsson forstjóri Íslandspósts. Vísir/Arnar Halldórsson
Íslandspóstur ohf. (ÍSP) fékk ekki samþykki Samkeppniseftirlitsins (SKE) áður en dótturfyrirtæki þess, ePóstur, var innlimað í móðurfélagið. Í sátt sem fyrirtækið gerði við stofnunina í febrúar 2017 segir að ekki megi sameina dótturfélög móðurfélaginu nema samþykki SKE liggi fyrir.

Félagið ePóstur var til umfjöllunar undir lok síðasta árs. ÍSP lánaði félaginu um 300 milljónir króna en lét lánin ekki bera vexti. Í fyrrnefndri sátt segir að reikna skuli vexti á lánin en það hyggst ÍSP ekki gera. Séu lánin látin bera markaðsvexti má reikna með að tap ÍSP af ePósti nemi hátt í hálfan milljarð króna. Samkvæmt fyrirtækjaskrá var ePóstur afskráð 13. desember síðastliðinn. Samruni félaganna var ákveðinn síðasta sumar en eftirlitsaðilum með sáttinni ekki tilkynnt um fyrirætlunina fyrr en fjórum mánuðum síðar. Áður en afstaða þeirra lá fyrir voru félögin sameinuð.

Í skriflegu svari SKE við fyrirspurn Fréttablaðsins segir að ekki liggi fyrir hjá stofnuninni afstaða til þess hvort aðgerðin sé brot gegn sáttinni. Því liggi ekki fyrir hvort gripið verði til aðgerða gagnvart ÍSP. Málið sé í skoðun.

Þetta er ekki í fyrsta sinn sem SKE skoðar fyrirtæki sem Ingimundur Sigurpálsson, forstjóri ÍSP, stýrir en hann var einnig forstjóri Eimskips í upphafi þessarar aldar. SKE ákvað Eimskipi 310 milljóna króna sekt vegna samkeppnisbrota fyrirtækisins í stjórnartíð Ingimundar.

Fyrir jól samþykkti Alþingi 1,5 milljarða neyðarlánsheimild til ÍSP vegna bágrar fjárhagsstöðu. Stjórnendur segja að tapið megi rekja til aukningar í „Kínasendingum“ en viðvarandi taprekstur hefur verið á dótturfélagi, sem ÍSP hefur lánað, og ýmsum þáttum samkeppnisrekstrar, til dæmis sendingum innanlands, áður en tap af erlendum sendingum kom til.




Tengdar fréttir

Pósturinn vill aur úr galtómum sjóði

Íslandspóstur hefur sótt um að fá 2,6 milljarða úthlutaða úr galtómum sjóði. Fjármunirnir eru hugsaðir til að endurgreiða neyðarlán frá ríkissjóði. Alls kostar óvíst er að fyrirtækið geti endurgreitt lánið. Í svari Póstsins segir að umsókn hafi verið send inn til vonar og vara.

Ræða stöðu Íslandspósts

Í dag fer fram á Alþingi sérstök umræða um Íslandspóst þar sem Þorsteinn er málshefjandi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×