Innlent

Kanna áhuga á alþjóðaflugvelli í Árborg

Andri Eysteinsson og Magnús Hlynur Hreiðarsson skrifa
Sveitarfélagið Árborg kannar nú möguleika á að koma upp alþjóðaflugvelli í Flóanum og hyggst undirrita viljayfirlýsingu þess efnis. Landeigendur hafa verið boðaðir á fund með forystumönnum sveitarfélagsins þar sem kynnt verða áform um að hefja rannsókn á kostum og göllum staðsetningar alþjóðaflugvallar í Árborg.

Fundurinn með landeigendum verður þriðjudaginn 8. janúar en á fundinn eru boðaðir þeir sem eiga jarðir á áhrifasvæði hugsanlegs flugvallar í Flóanum en þá er verið að tala um lönd í Stokkseyrarmýri og Brautartungu.

Kynnt verða áform um að hefja rannsóknir á kostum og göllum staðsetningar alþjóðaflugvallar á þessum stað. Gísli Halldór Halldórsson er bæjarstjóri í Árborg. 

„Það er fjöldi aðila, bæði í ferðaþjónustu og annars staðar sem hefur mikinn áhuga fyrir að skoða þetta til þrautar, hvort að hér gæti verið alþjóðaflugvöllur. Þetta yrði væntanlega ein flugbraut en við vitum auðvitað að ferðamenn sem koma til Íslands eru gríðarlega mikið að sækjast eftir því sem má finna hérna á suðurlandinu. Það væri ekki úr vegi þó þeir lentu hér og hefðu hér miðstöð. Auk þess gæti þetta hugsanlega spilað saman við vaxandi höfn í Þorlákshöfn þar sem er mikill innflutningur sem mun bara aukast á næstu árum,“ sagði Gísli Halldór.



Það var flugvöllur í Kaldaðarnesi, rétt hjá núverandi hugmynd um alþjóðaflugvöll í síðari heimsstyrjöldinni með herstöð og stórum flugvelli. En err hugmyndir um alþjóðaflugvöll í Flóanum raunhæfar?

„Já ég myndi segja að allavega með tilliti til veðurfarsaðstæðna þá held ég að þær séu mjög góðar. Með tilliti til staðsetningar flugvallarins tel ég að þetta sé mjög jákvætt. Þetta mun létta mjög á álag á Keflavíkurflugvöll ef af verður,“ segir Gísli Halldór Halldórsson bæjarstjóri í Árborg.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×