Íslenski boltinn

McAusland búinn að semja við Grindavík

Arnar Geir Halldórsson skrifar
Facebook Grindavík
Skoski varnarmaðurinn Marc McAusland hefur skrifað undir tveggja ára samning við knattspyrnudeild Grindavíkur og mun því leika með liðinu í Pepsi-deild karla á næstu leiktíð.

McAusland fékk sig lausan undan samningi við Keflavík í gær en hann hefur spilað með Keflavík síðastliðin þrjú ár en hann var fyrirliði liðsins þegar það féll úr Pepsi-deildinni síðastliðið sumar.

McAusland hefur spilað 66 leiki hér á landi og skorað í þeim tvö mörk.

Grindavík hafnaði í 10.sæti Pepsi-deildarinnar á síðustu leiktíð og í kjölfarið lét Óli Stefán Flóventsson af störfum. Við starfi hans tók Srdjan Tufedgzic.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×