Viðskipti innlent

Björk Eiðsdóttir nýr ritstjóri Glamour

Sylvía Hall skrifar
Björk mun sjá um Lífið á Fréttablaðinu sem og ritstýra Glamour.
Björk mun sjá um Lífið á Fréttablaðinu sem og ritstýra Glamour. Fréttablaðið/Anton
Björk Eiðsdóttir hefur gengið til liðs við Fréttablaðið þar sem hún vera umsjónarmaður Lífsins í Fréttablaðinu og á vef Fréttablaðsins. Þá mun hún taka við ritstjórn Glamour sem var áður í höndum Álfrúnar Pálsdóttur.

Björk starfaði áður sem ritstjóri tímaritsins MAN. Eliza Reid prýddi forsíðu síðasta tölublaðsins í desember en blaðið hættir nú útgáfu. Blaðið hafði verið gefið út frá árinu 2013.

Fleiri breytingar eru framundan hjá Fréttablaðinu en Benedikt Bóas Hinriksson mun taka við sérblöðum blaðsins og Guðmundur Snær Guðmundsson verður yfirhönnuður Fréttablaðsins.


Tengdar fréttir

MAN leggur upp laupana

Fleiri tölublöð af tímaritinu MAN munu ekki líta dagsins ljós.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×