Viðskipti innlent

Telja æskilegt að afnema bankaskattinn áður en bankarnir verða seldir

Þorbjörn Þórðarson skrifar
Afnema þarf bankaskattinn áður en bankarnir verða einkavæddir. Þetta er samdóma álit dósents í hagfræði og framkvæmdastjóra Viðskiptaráðs. Stefnt er að lækkun bankaskatts í fjórum jöfnum áföngum á næstu árum.

Pólitískur vilji til að selja bankanna kemur fram í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar, lagaheimildin er til staðar og mælt er með sölunni í hvítbók um framtíðarsýn fyrir fjármálakerfið.  

Áður en bankarnir verða seldir er álitaefni hvort hrinda þurfi í framkvæmd einhverjum tillögum sem koma fram í hvítbókinni en meðal þess sem er gagnrýnt þar er bankaskatturinn svokallaði sem leggst ofan á skuldir fjármálafyrirtækja. 

Auk almennra skatta eru lagðir sértækir skattar og gjöld á bankana sem tengjast fjármálastarfsemi sérstaklega. Hér er um að ræða bankaskattinn, almennan fjársýsluskatt af launum, sérstakan fjársýsluskatt af hagnaði, eftirlitsgjald til Fjármálaeftirlitsins og gjald til Umboðsmanns skuldara. 

Í fjármálaáætlun 2019–2023 er gert ráð fyrir að bankaskattur lækki í fjórum jöfnum áföngum, úr 0,376% af skuldum í 0,145% á tímabilinu.

Ásta Sigríður Fjeldsted, framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs Íslands, segir æskilegt að stjórnvöld afnemi bankaskattinn áður en bankarnir verða seldir.

„Það sem við hjá Viðskiptaráði höfum bent á er að það mætti sem fyrsta skref huga að sköttunum. Sérstökum sköttum sem lagðir eru á fjármálafyrirtæki á Íslandi og þar má nefna bankaskattinn. Þarna erum við að auka virði bankanna og létta á neytendum á sama tíma,“ segir Ásta.

Ásta Sigríður Fjeldsted framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs Íslands.Vísir/fréttir Stöðvar 2
Í hvítbók um framtíðarsýn fyrir fjármálakerfið segir meðal annars að „þung skattbyrði skerði amkeppnisstöðu íslenskra banka verulega og dragi úr hagnaðarmöguleikum“ og gerir íslenska banka að „síður áhugaverðum kosti í augum erlendra fjárfesta sem eru vanir hóflegra gjaldaumhverfi.“

Ásgeir Jónsson, dósent í hagfræði við Háskóla Íslands, segir að bankaskatturinn rýri söluverðmæti bankanna og því sé skynsamlegt að afnema hann áður en bankarnir verða seldir. Ef það verður niðurstaðan þarf að víkja frá þeirri stefnu sem kemur fram í fjármálaáætlun sem felst í því að lækka hann í jöfnum áföngum eins og greint er frá hér framar.

„Þetta eru skattar sem eru bara hér á Íslandi en ekki almennt á öðrum bönkum. Bankarnir standa mjög illa að vígi í samkeppni bæði við erlenda banka og aðra aðila hér innalands sem eru í útlánastarfsemi eins og til dæmis lífeyrissjóði,“ segir Ásgeir.








Tengdar fréttir

Telur tímabært að hefja undirbúning á sölu bankanna

Framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs Íslands segir tímabært að ríkisstjórnin hefji undirbúning á sölu á Íslandsbanka og hluta af Landsbankanum nú þegar hvítbók um framtíðarsýn fyrir fjármálakerfið liggur fyrir.

Vill selja ríkiseignir fremur en að þyngja álögur á landsmenn

Formaður efnahags- og viðskiptanefndar Alþingis, sjálfstæðismaðurinn Óli Björn Kárason, segir ríkið geta kostað vegagerð með því að selja eignir og kveðst andvígur því að álögur verði þyngdar á landsmenn með nýrri tegund skattheimtu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×