Innlent

Eldisfyrirtæki klagar prest til kirkjunnar

Sigurður Mikael Jónsson skrifar
Guðmundur Gíslason, forsvarsmaður Fiskeldis Austfjarða, sem kvartaði undan sóknarprestinum til þjóðkirkjunnar vildi ekki tjá sig um málið.
Guðmundur Gíslason, forsvarsmaður Fiskeldis Austfjarða, sem kvartaði undan sóknarprestinum til þjóðkirkjunnar vildi ekki tjá sig um málið.
Forsvarsmenn Fiskeldis Austfjarða hf. hafa sent þjóðkirkjunni kvörtun vegna framgöngu Gunnlaugs Stefánssonar, sóknarprests og ábúanda í Heydölum.

Gunnlaugur hefur haft sig mikið í frammi í baráttunni gegn sjókvía­eldi á Austfjörðum, meðal annars sem formaður Veiðifélags Breiðdæla. En hann á einnig hagsmuna að gæta sem sóknarprestur sem nýtur hlunninda af prestsjörðinni Heydölum. Hagsmuna af veiði á villtum laxi á svæðinu sem hann hefur lýst yfir opinberlega að hann telji sjókvíaeldi stofna í voða.



Gunnlaugur Stefánsson sóknarprestur í Heydölum.
Prestssetrinu í Heydölum fylgja nefnilega væn hlunnindi sem renna beint í vasa sóknarprests. Bæði af æðardúni og veiði í Breiðdalsá. Samkvæmt fasteignaskrá er hlutur Heydala í Breiðdalsá rúm 16 prósent og metinn á rúmar 4,7 milljónir króna samanborið við 13,4 milljóna matsverð á æðarvarpinu.

Guðmundur Gíslason, forsvarsmaður Fiskeldis Austfjarða, vildi ekkert tjá sig um kvörtunina þegar eftir því var leitað. Erindi fyrirtækisins var tekið fyrir á fundi kirkjuráðs þjóðkirkjunnar í síðasta mánuði.

Í fundargerð fundarins segir:

„Kirkjuráð samþykkti að fela fjármálahópi kirkjuráðs að óska eftir því við ábúandann, sóknarprestinn í Heydölum, að hann komi á næsta fund fjármálahópsins til að ræða um málefni prestssetursjarðarinnar Heydala.“

Málið virðist á viðkvæmu stigi því Oddur Einarsson, framkvæmdastjóri kirkjuráðs, vildi heldur ekki tjá sig um kvörtunina á hendur sóknarprestinum fyrir austan. Segir Oddur að málið sé í ákveðnu ferli eins og komi fram í fundargerðinni og meðan það sé í vinnslu verði fjölmiðlum ekki veittur aðgangur að gögnum málsins heldur.

Sem dæmi um hitann í eldisdeilunum fyrir austan má nefna að aðalfundur Veiðifélags Breiðdæla, sem Gunnlaugur veitir formennsku, sendi síðastliðið sumar frá sér harðorða bókun þar sem laxeldi í opnum sjókvíum við strendur Íslands var harðlega mótmælt. Meðal ummæla sem þar féllu voru að Íslendingar væru að „láta norska eldisrisa hafa sig að féþúfu“ og eldisiðja Fiskeldis Austfjarða í Berufirði væri „lögleysa, og trúverðugleiki stofnana, sem ábyrgð bera á útgáfu leyfa og eftirliti, er í molum og geta þær því tæpast talist marktækar“.

Ekki náðist í Gunnlaug Stefánsson í gær, þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×