Innlent

Sky fjallar um slæmt ástand vega á Íslandi

Samúel Karl Ólason skrifar
Þrír breskir ferðamenn, tveir fullorðnir og eitt barn, létu lífið þegar bílaleigubíll þeirra fór fram af brúnni og féll um sex metra niður af henni.
Þrír breskir ferðamenn, tveir fullorðnir og eitt barn, létu lífið þegar bílaleigubíll þeirra fór fram af brúnni og féll um sex metra niður af henni. Vísir/Jóhann
Fréttastofa Sky í Bretlandi segir brýr á Íslandi hafa verið gagnrýndar lengi í aðdraganda alvarlegs banaslyss á brúnni yfir Núpsvötn þann 27. desember. Þrír breskir ferðamenn, tveir fullorðnir og eitt barn, létu lífið þegar bílaleigubíll þeirra fór fram af brúnni og féll um sex metra niður af henni.



Hin látnu hétu Rajshree og Khushboo Laturia og Shreeprabha Laturia. Alls voru sjö í bílnum.

Önnur tvö börn sem voru í bílnum eru sögð á batavegi. Þá hefur lögreglan tekið skýrslu af einum farþega bílsins en ekki ökumanninum þar sem hann er alvarlega slasaður.

Sjá einnig: Hræðileg aðkoma og afar erfiðar aðstæður á vettvangi



Í umfjöllun Sky segir að ein af hverjum fjórum einnar akreinar brúa á landinu séu rúmlega sextíu ára gamlar og margar þeirra standist ekki nútímastaðla varðandi burðargetu og öryggi. Þá vísar Sky til ummæla Katrínar Jakobsdóttur, forsætisráðherra, í kjölfar slyssins um að viðhald á vegum landsins hafi ekki verið nægjanlegt á undanförnum árum og mikil þörf væri á endurbótum.



Sky ræddi við Bergþóru Þorkelsdóttur, forstjóra Vegagerðarinnar, sem sagði að til hafi staðið að skipta um allar einnar akreinar brýr sem fleiri en 200 bílar keyra yfir á dag en fjármagn hafi gert það erfitt.

„Vegakerfið var byggt á síðustu hundrað árum af 355 þúsund manna þjóð og nú erum við með 2,5 milljónir ferðamanna á þessum vegum, svo augljóslega hefur álagið á vegakerfinu aukist til muna,“ sagði Bergþóra við Sky.

 


Tengdar fréttir

Litla stúlkan sem lést var ekki í bílstól

Sveinn Kristján Rúnarsson, yfirlögregluþjónn á Suðurlandi, segir erfitt að fullyrða um það hversu miklu bílstóll hefði getað bjargað en bílstólar veiti börnum gríðarlega mikla vörn.

Börnin tvö á batavegi

Börnin tvö sem slösuðust þegar bifreið fór út af brúnni yfir Núpsvötn eru á batavegi, eftir því sem fram kemur í tilkynningu frá Lögreglunni´á Suðurlandi.

Bílstóll barnsins sem lést var laus

Lögregla og rannsóknarnefnd samgönguslysa unnu í dag að rannsókn umferðarslyssins sem varð við Núpsvötn í gær. Bílstóll fannst laus í Land Cruiser-jeppanum sem fór út af veginum við Núpsvatnsbrú og barnið sem lést var ekki í stólnum. Blóðsýni á ökumanni bifreiðarinnar leiddi í ljós að hann var ekki undir áhrifum áfengis.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×