Viðskipti innlent

Lítið sem ekkert svigrúm til hækkana

Kjartan Hreinn Njálsson skrifar
Bjarnheiður segir árið hafa markað kaflaskil.
Bjarnheiður segir árið hafa markað kaflaskil. Fréttablaðið/Sigtryggur Ari
Svigrúm flestra ferðaþjónustufyrirtækja til launahækkana er lítið sem ekkert og geta óábyrgir kjarasamningar haft mjög alvarleg áhrif á rekstrarforsendur þeirra. Þetta segir Bjarnheiður Hallsdóttir, formaður Samtaka ferðaþjónustunnar.

„Það eru vissulega blikur á lofti sem stendur yfirvofandi eru erfiðir kjarasamningar, sem félagsmenn eru vissulega áhyggjufullir yfir,“ ritar Bjarnheiður í áramótafærslu á vefsíðu samtakanna. Hún segir hlutfall launakostnaðar óvíða hærra en í ferðaþjónustufyrirtækjum, gengi krónunnar sé enn sterkt og sveiflist meira en góðu hófi gegnir.

Bjarnheiður segir í pistli sínum að árið sem rennur senn sitt skeið hafi markað viss kaflaskil í ferðaþjónustunni hér á landi.

„Hinum gríðarlega uppgangi síðustu ára, þar sem hvert metið á fætur öðru var slegið og litið á margra tugprósenta vöxt árlega sem sjálfsagðan, virðist nú vera lokið. Ýmsir þættir, einkum í ytra umhverfi greinarinnar sterkt gengi krónu, hár launa- og fjármagnskostnaður hafa valdið því að verð á íslenskri ferðaþjónustu á erlendum mörkuðum hefur sums staðar náð þeim hæðum að það hefur haft mikil áhrif á eftirspurn,“ ritar Bjarnheiður.

Segir hún að þetta ástand hafi breytt samsetningu erlendra gesta og þar með hafi ferðahegðun tekið breytingum atvinnugreinin hafi staðið fyrir stórum áskorunum á árinu sem er að líða, þar sem meginstefið hafi verið hagræðing í rekstri.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×