Lífið samstarf

Hliðarævintýri Spider-Man jólamynd fjölskyldunnar

Sena kynnir
Miles Morales er hinn eini sanni kóngulóarmaður. Eða það heldur hann. Í myndinni Spider-Man: Into the Spider-Verse kynnist Miles framandi Spider-Man víddum þar sem kóngulóarmenn, kóngulóarkonur og kóngulóardýr hafast við.  Öll eru þau gædd einhverskonar ofurhæfileikunum. Sjálfur Peter B. Parker – eldri og þreyttari Spider-Man frá öðrum hliðarheimi, kemur við sögu ásamt Gwen Stacy, svart/hvíta kóngulóarmanninum og Spider-Ham.

Spider-Man: Into the Spider-Verse er hliðarævintýri við hinar venjulegu Spider-Man-myndir og hefur fengið frábært lof gagnrýnenda. Myndin er “certified fresh” á Rotten tomatoes og hefur meðal annars verið nefnd sem besta ofurhetjumynd ársins en myndin er frá þeim sömu og færðu okkur Lego Movie.

Úrvalslið íslenskra leikara talar fyrir persónurnar í myndinni: Hafsteinn Níelsson fer með rödd Miles Morales og Þuríður Blær Jóhannsdóttir talar fyrir Spider Gwen. Rúnar Freyr Haraldsson talar fyrir hinn þreytta Peter Parker og Sigríður Eyrún Friðriksdóttir fyrir Peni Parker, Björgvin Franz Gíslason er Spider Noir og Ævar Þór Benediktsson er Spider-Ham.

Myndin verður frumsýnd annan í jólum, 26. desember og er miðasala hafin á midi.is.

Þeir sem vilja forskot á sæluna og sjá sérstaka Nexus forsýningu í kvöld klukkan 20 geta náð sér í miða í versluninni Nexus í Glæsibæ. Sú sýning er í 3D og með ensku tali.

Frábær fjölskyldumynd og svo sannarlega jólamyndin í ár! Myndin verður sýnd með bæði íslensku og ensku tali í Smárabíói, Háskólabíói, Laugarásbíói, Sambíóunum Álfabakka og Borgarbíói Akureyri.

Athugið að myndin er bönnuð börnum innan 6 ára.

Tónlistarmaðurinn Jóhann Kristófer skellti sér á frumsýningu Spider-Man: Into the Spider-Verse  í London á dögunum og hitti gengið að baki myndarinnar. Hér má sjá myndband Jóhanns.

Þessi kynning er unnin í samstarfi við Senu






Fleiri fréttir

Sjá meira


×