Viðskipti innlent

WOW búið að selja flugtíma sína á Gatwick

Stefán Ó. Jónsson skrifar
Þotur sem þessar munu því ekki lenda á Gatwick í bráð.
Þotur sem þessar munu því ekki lenda á Gatwick í bráð. Vísir/Vilhelm
WOW Air hefur í kjölfar endurskipulagningar á rekstri selt flugtíma sína á London Gatwick flugvelli. Hvorki kaupandi né kaupverð er gefið upp í tilkynningu frá flugfélaginu og er það sagt vegna þess að um trúnaðarsamkomulag sé að ræða.

WOW Air mun því fljúga alfarið á London Stansted-flugvöllinn frá og með 31. mars næstkomandi, en núverandi flugáætlun til Gatwick helst óbreytt þangað til - rétt eins og brottfarartímar. Flogið er er daglega frá Keflavíkurflugvelli kl. 06:10 að morgni og lent kl. 10:20 að staðartíma í London. Brottför frá London Stansted flugvelli er kl. 11:20.

Fram kemur í tilkynningunni að með þessari breytingu vonist WOW til að hagræða í rekstri sínum „og á sama tíma að skapa aukin tækifæri til áframhaldandi vaxtar á breska markaðnum.“ Í því skyni muni flugfélagið til að mynda hefja aftur flug til Edinborgar næsta sumar. Þangað verður flogið þrisvar í viku.

Áður hefur verið greint frá fyrrnefndum skipulagsbreytingum WOW, þá ekki síst í tengslum við fjárfestingu Indigo Partners LLC sem numið gæti rúmum 9 milljörðum. Til að aðlagast rekstrarlíkani bandaríska fjárfestingarsjóðsins var tilkynnt í síðustu viku að WOW myndi segja upp starfsfólki, fækka flugvélum og stokka upp í leiðakerfi sínu.


Tengdar fréttir

WOW hverfur aftur til fortíðar

Um 350 manns var sagt upp störfum hjá WOW air í dag. Forstjóri segir aðgerðina hafa verið nauðsynlega til að einfalda reksturinn og hverfa aftur til sama rekstrarmódels og var notað árið 2016. Það þýðir engar breiðþotur, færri flugvélar og færri áfangastaðir. Skúli Mogensen segist hafa gert mistök og ætlað sér of mikið.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×