Viðskipti innlent

Vinnumálastofnun staðfestir hópuppsögn hjá matvælafyrirtæki

Kristín Ýr Gunnarsdóttir skrifar
Kornið - handverksbakarí hefur verið starfrækt í 37 ár.
Kornið - handverksbakarí hefur verið starfrækt í 37 ár. Vísir/Vilhelm
Öll bakarí Kornsins hafa verið lokuð í dag og fengu starfsmenn tilkynningu um það í gærkvöldi að mæta ekki til vinnu. Alls eru bakaríin þrettán og vinna 90 manns hjá fyrirtækinu.

Kornið var stofnað fyrir 37 árum en fyrir ári síðan þegar Investor keypti reksturinn var stöðum fækkað vegna fjárhagslegrar endurskipulagningar.

Samkvæmt heimildum Viðskiptamoggans hefur Kornið stöðvað alla framleiðslu sem rekja megi til alvarlegra rekstrarerfiðleika hjá fyrirtækinu. Í samtali við fréttastofu sagði starfsmaður Kornsins mikla óvissu ríkja og erfitt að fá upplýsingar um framvindu mála.

Vinnumálastofnun staðfestir að hafa tekið við hópuppsögn frá fyrirtæki í matvælaiðnaði í dag en gefur hvorki upp nafn fyrirtækisins né fjöldann að svo stöddu.

DV greindi frá því í gær að Korninu að Fitjum í Reykjanesbæ hefði verið lokað. Fréttastofa hefur í morgun fengið ábendingar um fleiri bakarí Kornsins sem eru lokuð, meðal annars í Grafarholti og Árbæ.

Vantaði starfsfólk

Ingibjörg Ósk Jóhannesdóttir hefur haft umsjón með Korninu að Fitjum í Reykjanesbæ. Hún segir í samtali við fréttastofu að hún hafi fengið símtal í fyrrakvöld um lokun bakarísins.

Ingibjörg hefur unnið í Korninu í fjóra mánuði, hún býst við að uppsagnarfrestur hennar sé því stuttur.

„Ég veit ekkert hvort það mun einhver annar kaupa þetta. En það er bara lokað. Það vantaði slatta af starfsfólki, það hlaut að vera að þau voru ekki að ráða inn.“



Auglýst eftir fólki nýlega

Sex manns vinna hjá Korninu í Reykjanesbæ en samtals starfa um 90 manns hjá fyrirtækinu. Ingibjörg auglýsti eftir starfsmönnum fyrir tíu dögum.

„Mig vantaði tvo starfsmenn og það átti að reyna að ráða þá sem fyrst. Ég reikna með að þau hefðu reddað því í janúar því ég var búin að redda desember. Mig grunaði eitthvað þar sem ég var ekki að fá svör,“ sagði Ingibjörg Ósk Jóhannesdóttir hjá Korninu í Reykjanesbæ.

Ekki hefur náðst í forsvarsmenn Kornsins það sem af er degi.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×