Innlent

Rólegheitaveður í kortunum

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Það er spáð ágætu veðri í dag og á morgun og bjartviðri á höfuðborgarsvæðinu.
Það er spáð ágætu veðri í dag og á morgun og bjartviðri á höfuðborgarsvæðinu. vísir/vilhelm
Það verður rólegheitaveður í dag og á morgun samkvæmt hugleiðingum veðurfræðings á vef Veðurstofu Íslands. Á sunnudag, Þorláksmessu, gengur hann síðan í vaxandi suðvestanátt með slyddu eða rigningu á vestanverðu landinu en fyrir austan helst hann þurr og það hlýnar smám saman.

Á mánudag, aðfangadag, er svo spáð hvassri suðvestanátt með rigningu á norðvestanverðu landinu en annars hægari vindi og lítilsháttar vætu á Suðvesturlandi en þurru fyrir austan. Þá verður fremur hlýtt í veðri.

„Ef einhver snjór hefur fallið daginn áður þá mun hann líklega taka upp, þ.a. jóladagsmorgunn ætti a vera snjólaus að mestu, nema líklega á mið-Norðurlandi. Áfram spáð mildum suðlægum áttum með vætu á sunnanverðu landinu, en þurru fyrir norðan,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings.

Veðurhorfur á landinu:

Norðaustlæg átt, 3-10 m/s. Þokuloft eða súld á A-verðu landinu og slydda eða rigning eftir hádegi, úrkomulítið NV-til, en annars yfirleitt léttskýjað. Hægviðri og víða léttskýjað á morgun, en sums staðar skýjað við sjávarsíðuna, suðvestan 5-10 N-til annað kvöld. Hiti víða 0 til 5 stig að deginum, en frost 1 til 8 stig inn til landsins, mest á N-landi.

Á sunnudag (Þorláksmessa):

Vaxandi suðvestan átt og stöku él, en bjart fyrir austan. Hvassviðri með slyddu eða rigningu um landið norðvestanvert um kvöldið, en annars hægari og þurrt að kalla. Hlýnar í veðri.

Á mánudag (aðfangadagur jóla):

Suðvestanhvassviðri á N-verðu landinu, en hægara syðra. Dálítil rigning NV-til, úrkomulítið SV-lands, en annars þurrt. Dregur smám saman úr vindi og úrkomu þegar líður á daginn. Hiti 2 til 7 stig.

Á þriðjudag (jóladagur):

Gengur í sunnan og suðaustan 10-15 með rigningu eða slyddu, fyrst suðvestantil. Hiti 0 til 5 stig.

Á miðvikudag (annar í jólum):

Suðvestlæg átt og skúrir eða él og hiti 0 til 5 stig, en þurrt um landið norðaustanvert og hiti um frostmark.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×