Innlent

Telur fæsta þingmenn spillta

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Guðmundur Andri setur þó þann varnagla við skoðun sína að reynsla hans af Alþingi sé enn takmörkuð.
Guðmundur Andri setur þó þann varnagla við skoðun sína að reynsla hans af Alþingi sé enn takmörkuð. FBL/Eyþór
Guðmundur Andri Thorsson, þingmaður Samfylkingarinnar, segir Alþingismenn upp til hópa fólk sem reyni að sinna vinnu sinni af samviskusemi. Hann kemur ekki auga á að þingmenn séu almennt spilltir og veit ekki í hverju sú spilling ætti að lýsa sér.

Þetta segir Guðmundur Andri á Facebook en um er að ræða viðbrögð þingmannsins við nýrri könnun Félagsvísindastofnunar Háskóla Íslands. Þar kom fram að 65 prósent landsmanna telja að margir eða nánast allir 63 þingmenn landsins séu viðriðnir spillingu. Aðeins 2 prósent landsmanna telja að nánast engir þingmenn séu spilltir.

Stofnunin gerði sömu könnun fyrir tveimur árum. Þá var hlutfall þeirra sem töldu nokkra ef ekki alla þingmenn viðriðna spillingu helmingi minna eða 34 prósent.

Samanburður á skoðanakönnunum Félagsvísindastofnunar árið 2016 og 2018.Félagsvísindastofnun HÍ
„Reynsla mín af þingi er svo sem takmörkuð enn. Ég er kannski ekki nógu næmur á þessa hluti, en ég kem hreinlega ekki auga á það að þingmenn séu almennt spilltir og veit ekki í hverju það ætti að lýsa sér,“ segir Guðmundur Andri sem tók sæti á Alþingi fyrir Samfylkinguna árið 2017.

„Þetta er upp til hópa fólk sem er að reyna að sinna sinni vinnu af samviskusemi - margt með skrýtnar skoðanir vissulega, en það eitt og sér gerir manneskju ekki spillta, svona eins og ég skil það orð. Satt að segja stendur mér stuggur af þessari rótgrónu andúð á þinginu og því fólki sem þar starfar, held að við höfum vonda reynslu af andþingræðislegum stefnum á síðustu öld.“

Uppfært klukkan 14:20

Fyrirsögn var breytt eftir athugasemd frá þingmanninum. Hún var Kemur ekki auga á spillingu hjá kollegum sínum. Þingmaðurinn taldi þá fyrirsögn ekki lýsa færslu hans réttilega. Hann þyrfti að vera sjóndapur ef hann kæmi ekki auga á einhverja spillingu en hún væri ekki almenn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×