Sextándi sigur Juventus kom gegn Roma

Anton Ingi Leifsson skrifar
Leikmenn Juventus fagna.
Leikmenn Juventus fagna. Vísir/Getty
Juventus vann sinn sextánda leik í ítölsku úrvalsdeildinni þetta tímabilið er liðið vann 1-0 sigur á Roma á heimavelli.

Eina mark leiksins kom tíu mínútum fyrir leikhlé er króatíski framherjinn Mario Mandzukic skoraði eftir Mattia De Sciglio.

Juventus virtist vera að tvöfalda forystuna undir lok leiksins er Douglas Costa skoraði eftir sendingu frá Cristiano Ronaldo en markið var dæmt af eftir myndbandsupptökur voru skoðaðar.

Juventus er á toppnum með 49 stig, átta stigum á undan Napoli og verður á toppnum yfir jólin en leikið verður á annan í jólum á Ítalíu. Liðið er með sextán sigra í fyrstu sautján leikjunum; sextán sigrar og eitt jafntefli.

Roma er í vandræðum en liðið er í tíunda sætinu með 24 stig.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira