Ronaldo kom Juventus til bjargar

Anton Ingi Leifsson skrifar
Ronaldo fagnar jöfnunarmarkinu.
Ronaldo fagnar jöfnunarmarkinu. vísir/getty
Cristiano Ronaldo kom Juventus til bjargar er liðið gerði 2-2 jafntefli við Atalanta í ítölsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag.

Juventus komst yfir á annarri mínútu leiksins er Berat Djimsiti skoraði sjálfsmark en Atalanta jafnaði á 24. mínútu með marki framherjans Duvan Zapata.

Staðan var 1-1 í hálfleik en á áttundu mínútu síðari hálfleiks fékk Rodrigo Bentancur, miðjumaður Juventus, sitt annað gula spjald og þar með rautt.

Heimamenn í Atalanta komust yfir á 56. mínútu er Zapata skoraði annað mark sitt og annað mark Atalanta og þeir komnir í kjörstöðu.

Cristiano Ronaldo byrjaði á bekknum en var kallaður á vettvang á 65. mínútu. Það kom ekki mörgum á óvart að það var svo hann sem skoraði jöfnunarmarkið tólf mínútum fyrir leikslok.

Lokatölur 2-2 og Juventus er áfram á toppi deildarinnar en þeir hafa ekki tapað leik á tímabilinu. Þeir eru með 50 stig, níu stigum meira en Napoli sem eru í öðru sætinu.

Atalanta eru í sjöunda sætinu með 25 stig.

Úrslit dagsins:

Fiorentina - Parma 0-1

Bologna - Lazio 0-2

Cagliari - Genoa 1-0

Sampdoria - Chievo 2-0

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira