Sport

Gunnar Nelson sér framtíð í tölvuleikjabransanum

Anton Ingi Leifsson skrifar
Gunnar fyrir bardagann gegn Alex Oliveira áttunda desember.
Gunnar fyrir bardagann gegn Alex Oliveira áttunda desember. vísir/getty
Bardagakappinn Gunnar Nelson segir í viðtali Eurobash að hann gæti farið sömu slóð og annar bardagakappi, Demetrious Johnson, og farið enn meira inn á tölvuleikjamarkaðinn.

Gunnar er mikill áhugamaður um tölvuleiki og í hlaðvarpsviðtalinu við hann var hann spurður út í þetta áhugamál.

„Ég elska Call of Duty. Ég er að spila nýja leikin núna. Ég byrjaði að spila Infinite Warfare, svo Black Ops3 en ég spilaði IW I mest. Mér líkaði ekki við WW2,“ sagði Gunnar í viðtalinu.

„Þessi leikur er örlítið hraðari svo mér líkar það vel. Ég er einnig aðeins að spila Fornite.“

Demetrious Johnson hefur þénað duglega á því að streyma sjálfum sér að spila alls kyns tölvuleiki og Gunnar segir að það sé eitthvað sem muni gerast.

„Ég held að ég muni gera það,“ sagði Gunnar aðpsurður um hvort að hann væri áhugasamur um að byrja streyma sjálfum sér spila tölvuleiki.

„Ég held að lokum muni ég gera það. Vinir mínir segja mér að byrja streyma mér spila svo ég held að ég muni gera það. Ég þarf að gera þetta vel og svoleiðis en ég held að ég muni gera það.“

Í innslagi Íslands í dag fyrir bardaga Gunnar gegn Alex Oliveira fyrr í þessum mánuði var komið inn á áhuga Gunnars á tölvuleikjum og meðal annars rætt við áhugann við þjálfara hans.

„Það er misjafnt hvað ég spila mikið en ég spila eitthvað flesta daga,“ sagði Gunnar í viðtalinu við Kjartan Atla Kjartansson í Ísland í dag.

Matthew Miller er æfingarfélagi Gunnars og hann sagði í sama innslagi að Gunnar gæti hæglega orðið atvinnumaður í greininni. Innslagið í heild má sjá hér að neðan.



MMA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×