Körfubolti

Dagur Kár öflugur í enn einu tapi Flyers

Anton Ingi Leifsson skrifar
Dagur Kár er að gera flotta hluti í Austurríki en sömu sögu má eki segja af liði hans.
Dagur Kár er að gera flotta hluti í Austurríki en sömu sögu má eki segja af liði hans. mynd/flyerswels
Dagur Kár Jónsson átti ágætis leik er Flyers Wels tapaði gegn Kapfenberg Bulls, 90-76, í austurrísku úrvalsdeildinni í körfubolta í kvöld.

Dagur Kár og félagar í Flyers Wels byrjuðu vel og voru sjö stigum yfir eftir fyrsta leikhlutann. Þeir leiddu svo í hálfleik 46-38.

Í þriðja leikhlutanum gekk hins vegar allt á afturfótunum hjá Flyers. Þeir töpuðu leikhlutanum 27-11 og töpuðu leiknum svo að endingu 90-76.

Dagur Kár átti fínan leik fyrir Flyers. Dagur skoraði tólf stig, gaf fimm stoðsendingar og tók eitt frákast en Flyers er í næst neðsta sæti deildarinnar með sex stig.

Kapfenberg er í þriðja til fimmta sæti deildarinnar með átján stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×