Viðskipti erlent

Snjallforrit velta meiru en í fyrra

Þórgnýr Einar Albertsson skrifar
Greiningarfyrirtækið App Annie tók tölfræðina saman.
Greiningarfyrirtækið App Annie tók tölfræðina saman. Nordicphotos/Getty
Niðurhal á snjallforritum, eða öppum, fyrir snjallsíma jókst um tíu prósent á árinu miðað við árið í fyrra. Þá jókst velta appa um tuttugu prósent. Greiningarfyrirtækið App Annie tók tölfræðina saman og telur að bæði leikir og forrit sem krefjast áskriftar séu helstu orsakavaldarnir.

Þau þrjú öpp, önnur en leikir, sem veltu mestu á heimsvísu á árinu eru Netflix, Tinder og Tencent Video. Það síðastnefnda er einkum vinsælt í Kína en fleiri kínversk öpp má finna á listanum. Til að mynda Youku og iQIYI.

Sé litið til leikja eru Fate/Grand Order, Honour of Kings og Monster­ Strike í efstu þremur sætunum. Neðar má finna kunnuglega titla á borð við Candy Crush Saga, Pokémon GO, Clash of Clans og Clash Royale.

Athygli vekur að Fortnite er ekki á listanum, en leikurinn er þó í boði fyrir Android og iOS. Ástæðan er sú að fyrir Android-síma er leikurinn ekki í appverslun Google, Play Store. Þess í stað er hann í sérstakri appverslun útgefandans, Epic Games. Búast má við því að fleiri fyrirtæki feti í fótspor Epic Games eða setji leiki sína í þá appverslun enda tekur fyrirtækið minni hluta af veltunni til sín en Google. Tólf prósent samanborið við þrjátíu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×