Körfubolti

Slóvenska undrið nálægt þrennu og Rose frábær á heimaslóðum | Myndband

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Luka Doncic er magnaður leikmaður.
Luka Doncic er magnaður leikmaður. getty/Thearon W. Henderson
Slóvenska körfuboltaundrið Luka Doncic heldur áfram að heilla í NBA-deildinni en hann fór á kostum enn og aftur fyrir Dallas Mavericks í nótt er liðið lagði New Orleans Pelicans, 122-119, á heimavelli.

Nýliðinn leiddi sína menn til sigurs með frábærum leik en hann skoraði 21 stig, tók tíu fráköst og gaf níu stoðsendingar og var grátlega nálægt þrennu er Dallas komst hjá því að tapa sjöunda leiknum í röð.

Doncic átti erfiðan dag fyrir utan þriggja stiga línuna og brenndi af öllum fimm skotum sínum þar en hann var duglegur að komast á vítalínuna og hitti úr fyrstu ellefu skotum sínum þaðan áður en hann brenndi af síðasta vítaskoti sínu í leiknum.

Þrátt fyrir að vera með einn mest spennandi leikmann deildarinnar er Dallas-liðið ekki gott en það er í tólfta sæti vestursins með 16 sigra og 17 töp en New Orleans heldur áfram að valda vonbrigðum og er í næst neðsta sæti vestursins.

Derrick Rose sneri aftur á heimaslóðir í nótt í annað sinn er Minnesota Timberwolves heimsótti Chicago Bulls og hafði sigur, 119-94, en Rose er að eiga mikið og gott endurkomutímabil.

Rose var valinn besti leikmaður deildarinnar eitt af sínum sjö árum sem leikmaður Chicago og hann minnti sína gömlu stuðningsmenn á sig í nótt með 24 stigum og átta fráköstum.

Karl-Anthony Towns átti stórleik undir körfunni og skoraði 20 stig og tók 20 fráköst fyrir Úlfana sem eru samt sem áður við botninn í vestrinu með 16 sigra og 17 töp.

Það sýnir kannski muninn á austurdeildinni og vesturdeildinni að Chicago er í sama sæti og Minnesota í austrinu en aðeins með níu sigra og 26 töp og er eitt allra slakasta lið NBA-deildarinnar.

Úrslit næturinnar:

Detroit Pistons - Washington Wizards 106-95

Orlando Magic - Phoenix Suns 120-122

Atlanta Hawks - Indiana Pacers 121-129

Brooklyn Nets - Charlotte Hornets 134-132

Miami Heat - Toronto Raptors 104-106

Chicago Bulls - Minnesota Timberwolves 94-119

Memphis Grizzlies - Cleveland Cavaliers 95-87

Dallas Maverics - New Orleans Pelicans 122-119

LA Clippers - Sacramento Kings 127-118

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×