Fótbolti

Ekkert gert í apahljóðum sem beint var að Koulibaly: „Ég er stoltur af húðlit mínum“

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Kalidou Koulibaly átti slæmt gærkvöld.
Kalidou Koulibaly átti slæmt gærkvöld. getty/Tullio Puglia
Carlo Ancelotti, þjálfari Napoli í ítölsku A-deildinni í fótbolta, sagði eftir tapleik liðsins á móti Inter í gærkvöldi að dómari leiksins hefði í þrígang neitað að stöðva leikinn vegna kynþáttaníðs stuðningsmanna Inter sem beint var að Kalidou Koulibaly, leikmanni Napoli.

Senegalinn er einn eftirsóttasti varnarmaður heims í dag og hefur verið orðaður við stórlið í ensku úrvalsdeildinni en stuðningsmenn Inter beindu apahljóðum að honum nánast allan leikinn í gærkvöldi.

Lautaro Martínez skoraði sigurmarkið fyrir Inter í uppbótartíma eftir að hinn senegalski Koulibaly, sem er fæddur í Frakklandi, fékk sitt annað gula spjald á 82. mínútu. Hann fékk gult fyrir að brjóta á Matteo Politano, leikmanni Inter, og strax annað gult spjald fyrir að klappa kaldhæðnislega fyrir dómaranum.

„Koulibaly var auðvitað orðinn pirraður. Hann er vanalega rólegur og mikill atvinnumaður en hann þurfti að sitja undir þessum apahljóðum allan leikinn. Við báðum þrívegis um að leikurinn væri stöðvaður en ekkert var gert,“ sagði Ancelotti eftir leik.

„Okkur var alltaf sagt að halda áfram en hversu oft eigum við að þurfa að benda á þetta? Fjórum sinnum? Fimm sinnum? Næst tökum við málin í okkar eigin hendur og göngum af velli en þá töpum við líklega leiknum. Við erum samt tilbúnir til að gera það.“

Gærkvöldið var svo sannarlega ekki gott fyrir Koulibaly sem var beittur kynþáttaníð, var rekinn af velli og þurfti að horfa upp á félaga sína tapa leiknum.

„Ég er vonsvikinn með tapið en mest er ég svekktur með að hafa yfirgefið bræður mína. Ég er samt stoltur af húðlit mínum. Ég er stoltur af því að vera franskur, senegalskur, íbúi í Napólí og maður,“ skrifaði Koulibaly á Twitter eftir leik.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×