Körfubolti

Martin heldur áfram að spila vel í Þýskalandi

Anton Ingi Leifsson skrifar
Martin í lei kmeð Alba.
Martin í lei kmeð Alba. vísir/getty
Martin Hermannsson var stigahæstur hjá Alba Berlín sem vann nokkuð þægilegan sigur á Giessen 46ers, 108-96, í þýsku úrvalsdeildinni í körfubolta í kvöld.

Martin og félagar byrjuðu af krafti á heimavelli en þeir voru ellefu stigum yfir eftir fyrsta leikhlutann, 28-17. Þeir leiddu einnig í hálfleik 54-49.

Svipað jafnræði var með liðunum í þriðja leikhlutanum en góður fjórði leikhluti skilaði sigrinum í hús fyrir Alba Berlín. Lokatölur 108-96.

Martin var stigahæsti leikmaður Alba og einnig stigahæsti leikmaður vallarins. Hann gerði nítján stig en auk þess gaf hann þrjár stoðsendingar og tók þrjú fráköst.

Alba Berlín er í öðru sæti deildarinnar með átján stig, sex stigum á eftir toppliði Bayern Munchen. Berlín á þó leik til góða á Bayern.

Jakob Sigurðarson spilaði ekkert er Borås vann öruggan sigur á Uppsala í sænsku úrvalsdeildinni, 101-84. Borås er í öðru sætinu, sex stigum á eftir Södertalje sem er á toppnum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×