Handbolti

Stefán Rafn: Er sem betur fer ekki á Twitter

Anton Ingi Leifsson úr Laugardalshöll skrifar
Stefán Rafn var öflugur í kvöld.
Stefán Rafn var öflugur í kvöld. vísir/getty
Stefán Rafn Sigurmannsson, vinstri hornamaður íslenska landsliðsins í handbolta, var ánægður með stórsigurinn á Barein í æfingaleik í Laugardalshöllinni í kvöld.

Stefán átti frábæran leik og skoraði sjö mörk úr vinstra horninu. Ekkert af þeim kom af vítalínunni en leikurinn var kaflaskiptur. Stefán tók undir það.

„Við spiluðum fyrstu mínúturnar ótrúlega vel og sýndum hvað við gátum þar en svo fengum við á okkur ódýrar tvær mínútur,“ sagði Stefán Rafn í leikslok.

„Ég held að við höfum fengið á okkur fjórar tvær mínútur í maður á móti manni. Þá breyttist þetta og var hörkuleikur alveg fram í hálfleik.“

„Svo komum við betri inn í seinni hálfleikinn og skrýtinn síðari hálfleikur. Þeir spiluðu mikið sjö á móti sex og við unnum mikið boltann. Þetta voru auðveld hraðaupphlaup og þá náðum við forystunni.“

Það virkaði allt annað íslenskt lið sem kom inn á í síðari hálfleikinn hvað varðar varnarleikinn og Stefán segir að Guðmundur Guðmundsson, landsliðsþjálfari, hafi farið vel yfir stöðuna í hálfleik.

„Hann var ekki sáttur með hvernig við vorum að standa einn á móti einum. Við komum grimmir inn í seinni hálfleikinn og bættum úr því. Við gerðum það vel og vorum ekki að fá klaufalegar tvær mínútur. Það munaði ótrúlega miklu.“

Skiptar skoðanir hafa verið um val Guðmundar hvað varðar vinstri hornamenn en Ísland á þrjá vinstri hornamenn í topp deildum Evrópu; Guðjón Val Sigurðsson, Bjarka Má Elísson og Stefán sjálfan.

Mikið var rætt og ritað um hvort að Guðmundur hafi gert rétt með að velja Guðjón og Stefán í tuttugu manna æfingahóp og skilja Bjarka eftir en Stefán segir að hann láti þessa umræðu eins og vind um eyru þjóta.

„Ég er sem betur fer ekki á Twitter svo ég er ekki að fylgjast með þessu sem er í gangi þar en ég er búinn að spila ótrúlega vel. Mér líður vel og er glaður að hafa verið valinn.“

„Ég er að spila í frábærri deild og er í Meistaradeildinni. Ég held að það segi allt um það hvað ég get. Bjarki er frábær leikmaður líka og Íslendingar eru heppnir að eiga svona mikið af vinstri hornamönnum.“

„Það þarf ekki að hafa áhyggjur af því en auðvitað er leiðinlegt að skilja einn eftir en svona er þetta. Okkur langar öllum að vera með og við erum allir að spila vel. Ég er búinn að vera spila frábærlega svo þetta er gott,“ sagði Stefán að lokum.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×