Erlent

Óttast að hakk hafi afhjúpað þúsund föðurlandsflóttamenn 

Sigurður Mikael Jónsson skrifar
Eftirsótt er af mörgum íbúum Norður-Kóreu að komast suður yfir landamærin.
Eftirsótt er af mörgum íbúum Norður-Kóreu að komast suður yfir landamærin. Fréttablaðið/EPA
Óttast er að gagnaleki með persónuupplýsingum nærri eitt þúsund flóttamanna frá Norður-Kóreu kunni að stofna fjölskyldum þeirra í heimalandinu í hættu. Sameiningarráðuneyti Suður-Kóreu hefur staðfest að svo virðist sem tölva í endur­búsetumiðstöð hafi verið hökkuð og persónuupplýsingum 997 norðurkóreskra flóttamanna lekið.

BBC greinir frá því að enginn hafi enn sem komið er lýst ábyrgð tölvuárásarinnar á hendur sér en um er að ræða fyrstu árás sinnar tegundar og af þessari stærðargráðu.

Stjórnvöld í Norður-Kóreu hafa ekki persónuupplýsingar allra þeirra sem flúið hafa einræðisríkið í gegnum tíðina, oft við illan leik. Nú liggur hins vegar fyrir að upplýsingum um nafn, fæðingardag og heimilisföng 997 flóttamanna hefur verið lekið og alls óljóst hvaða áhrif það kunni að hafa.

Stjórnmálaskýrendur sem BBC vísar til segja ástæðu til að hafa áhyggjur af því að lekinn kunni að stofna fjölskyldum flóttafólksins, sem enn búa í Norður-Kóreu, í hættu. Eitt sé þó ljóst að lekinn grafi undan öryggistilfinningu norðurkóreskra flóttamanna í Suður-Kóreu og kalli hugsanlega á að þeir breyti um nöfn, símanúmer og heimilisfang.

Það var þann 19. desember síðastliðinn sem sameiningarráðuneyti Suður-Kóreu uppgötvaði lekann og fann grunsamlegt forrit á tölvu í endurbúsetumiðstöð, eða Hana-miðstöð, í Norður-Gyeongsanghéraði. Um er að ræða ríkisstofnun sem hjálpar þúsundum flóttamanna úr norðri að aðlagast lífinu sunnan landamæranna.

Tölvuöryggissérfræðingurinn Simon Choi segir í samtali við BBC að líklega sé þetta ekki í fyrsta skipti sem tölvuárás sé gerð á Hana-miðstöð.

„Það er til norðurkóreskur hakkarahópur sem beinir sjónum sínum aðallega að föðurlandsflótta­mönnum og við vitum að hópurinn reyndi að hakka eina slíka miðstöð í fyrra.“

Þótt böndin berist að nágrönnunum í norðri er enn of snemmt að skella skuldinni á þá.

Sameiningarráðuneytið mun, ásamt lögreglu, rannsaka öryggisbrestinn og árásina og er rannsóknin á frumstigi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×