Körfubolti

Langþráður sigur hjá Degi og félögum

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
Dagur Kár lék með Grindavík undanfarin tvö tímabil.
Dagur Kár lék með Grindavík undanfarin tvö tímabil. vísir/Ernir
Dagur Kár Jónsson og félagar í Flyers Wels stoppuðu níu leikja tapgöngu með sigri á UBSC Graz í kvöld.

Dagur Kár var í byrjunarliði Wels í kvöld og spilaði nær allan leikinn en aðeins tveir varamanna Wels fengu að spila eitthvað að ráði í leiknum.

Það þurfti að framlengja leikinn til þess að fá fram úrslit og þar hafði Wels betur með tveimur stigum, 95-93.

Dagur skilaði 12 stigum og gaf 7 stoðsendingar á félaga sína í leiknum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×