Lífið

Hlutir sem ættu að snúa aftur á Laugaveginn

Don Cano var mjög vinsælt tískumerki á níunda áratugnum. Hér eru Hólmfríður Karlsdóttir og Guðmundur Hreiðarsson í auglýsingu fyrir fyrirtækið.
Don Cano var mjög vinsælt tískumerki á níunda áratugnum. Hér eru Hólmfríður Karlsdóttir og Guðmundur Hreiðarsson í auglýsingu fyrir fyrirtækið. Mynd/Sigurgeir Sigurjónsson
Don Cano er komið aftur og er nýja línan nú fáanleg í verslun á Laugaveginum. Margir hugsa hlýtt til Don Cano enda tók þjóðin ástfóstri við merkið á sínum tíma. Fréttablaðið tók saman nokkra góða hluti og búðir sem ættu að í endurkomu - líkt og fatamerkið.



Liverpool Draumaheimur íslenskra barna og ein merkilegasta dótabúð sem hér hefur verið. Það er fátt skemmtilegt á Laugaveginum eins og hann er núna og dótabúð myndi svo sannarlega lita búðaflóruna þar fallegum litum.
Liverpool

Draumaheimur íslenskra barna og ein merkilegasta dótabúð sem hér hefur verið. Það er fátt skemmtilegt á Laugaveginum eins og hann er núna og dótabúð myndi svo sannarlega lita búðaflóruna þar fallegum litum.

Löwenbräu

Fyrsta daginn eftir að bjórbanninu lauk fengust fimm bjórtegundir í Vínbúðum í Reykjavík, Egils Gull, Sanitas Pilsner og Lageröl, Budweiser og Löwenbräu. ÁTVR-búðin í miðbænum er miðuð að ferðamönnum og það er lítið um Löw­enbräu. Reyndar finnst þessi goðsagnakenndi bjór ekki í hillum ÁTVR. Ameríski barinn er til, írski barinn og sá danski en hvar er sá þýski? Nostalgía í hverjum sopa.

Yfirvaraskegg

Lostakústar Toms Sell­eck, Freddys Mercury, Tobba Jens og Marteins Geirssonar voru ekkert minna en stórkostlegir. Ekki væri úr vegi að bjóða upp á sérstakt lostakústahorn á hár- og rakarastofum Laugavegarins. Þar væri líka hægt að fá sítt að aftan, permanent og aðrar geggjaðar greiðslur fortíðar.

Afaskyrturnar

Pearl Jam og grunge-lúkkið er vanmetin snilld. Vissulega hægt að finna þessar skyrtur einhvers staðar en það mætti vera sérstakt horn í Vinnufatabúðinni með þessum óð til fortíðar

Raftækin

Þegar Don Cano tröllreið tískunni hér heima voru barnapíur sjónvarpsins að ryðja sér til rúms. Sinclair Spectrum, Binatone-tölvan, PC 386, Commodore og Amstrad ættu auðvitað að eiga sitt horn í Tiger. Nintendo selur litlu nostalgíutölvuna sína og það vilja allir horfa aðeins til fortíðar – helst með túbusjónvarpi.

Spilavinir

Spilavinir eru í Faxafeni. Þar er stórkostlegt að koma og vera. En Trivial Pursuit finnst ekki í búðarhillum lengur. Stórkostlegasta fjölskylduspil allra tíma. Trúlega eru spurningaspil liðin tíð en hver vill ekki fá sömu spurninguna aftur og aftur og vinna með örlitlu svindli?

Hljómborð

Hljóðgervlar og önnur rafhljóðfæri sköpuðu mikið af tónlist þegar fólk klæddist Don Cano. Það væri nú ekki vitlaust að vera með gott 90´s horn í hljóðfærabúð Laugavegs - sem er hvergi.

DVD-diskurinn

Hver saknar ekki DVD-disksins? Ekki hægt að spóla yfir kynningar sem var troðið upp á neytandann og hann varð að vera í ákveðnu „region“! Sumir eiga reyndar enn sinn DVD-spilara – sem er merkilegt. Það þyrfti reyndar að vera myndbandaleiga á Laugavegi, sem er ekki – fyrir utan DVD-barnamyndahornið í Bónus.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×