Lífið

Bjargaði sér og barni sínu á síðustu stundu

Samúel Karl Ólason skrifar
Konan hljóp undan flutningabílnum með barn í fanginu en annar bíll kastaðist á eftir konunni. Henni tókst þó að hlaupa á brott.
Konan hljóp undan flutningabílnum með barn í fanginu en annar bíll kastaðist á eftir konunni. Henni tókst þó að hlaupa á brott.
Myndband sem talið er hafa verið tekið í Víetnam fyrr í vikunni, sýnir hvernig konu tókst með naumindum að bjarga sér og barni sínu frá því að verða fyrir flutningabíl. Á myndbandinu sem tekið er af mælaborði bíls má sjá hvernig konan stóð við bíl hægra megin við veginn. Hinu megin við götuna mátti sjá hvernig bíl er ekið fyrir flutningabíl.

Flutningabíllinn fór yfir veginn þveran og lenti þar á öðrum bílum og út í skurði.

Konan hljóp undan flutningabílnum með barn í fanginu en annar bíll kastaðist á eftir konunni. Henni tókst þó að hlaupa á brott.

Myndbandið má sjá hér að neðan.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×