Lífið

Gummi Ben leggur upp og Örn Árnason skorar í eldhúsinu

Stefán Árni Pálsson skrifar
Gummi Ben og Örn flottir saman.
Gummi Ben og Örn flottir saman.
Ísskápastríðið var á dagskrá Stöðvar 2 í gærkvöldi og voru gestir þáttarins af dýrari gerðinni að þessu sinni.

Þau Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir ferðamála, nýsköpunar og iðnaðarráðherra og leikarinn Örn Árnason léku listir sínar í eldhúsinu.

Það má með sanni segja að Örn Árnason kann sitthvað fyrir sér í eldhúsinu og var álagið á liðsfélaga hans, Gumma Ben, ekki mikið í þættinum.

Vinkonurnar Eva Laufey og Þórdís Kolbrún mynduðu sterkt teymi sem nýtti aftur á móti alltaf allan tímann. Há Erni og Gumma var stundum tími afgangs.

Hér að neðan má sjá þegar liðin gerðu aðalréttinn.

Klippa: Gummi og Örn kláruðu snemma





Fleiri fréttir

Sjá meira


×