Innlent

Siðfræðistofnun veitir stjórnvöldum ráðgjöf

Kristín Ólafsdóttir skrifar
Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, Jón Atli Benediktsson, rektor Háskóla Íslands og Vilhjálmur Árnason, stjórnarformaður Siðfræðistofnunar undirrita samninginn.
Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, Jón Atli Benediktsson, rektor Háskóla Íslands og Vilhjálmur Árnason, stjórnarformaður Siðfræðistofnunar undirrita samninginn. Mynd/Stjórnarráðið
Siðfræðistofnun, rannsóknarstofnun innan vébanda Hugvísindastofnunar Háskóla Íslands, verður stjórnvöldum til ráðgjafar í siðfræðilegum efnum tímabilið 1. janúar 2019 til 31. desember 2021. Þetta kemur fram í samstarfssamningi sem Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, Jón Atli Benediktsson, rektor Háskóla Íslands og Vilhjálmur Árnason, stjórnarformaður Siðfræðistofnunar rituðu undir í gær.

Stofnunin mun vinna með stjórnvöldum að eftirfylgni og innleiðingu tilmæla í skýrslu starfshóps forsætisráðherra um eflingu trausts á stjórnmálum og stjórnsýslu, sem var birt í september síðastliðnum.

Samkvæmt samningnum getur hvert ráðuneyti einnig óskað eftir ráðgjöf Siðfræðistofnunar um einstök mál á sínu málefnasviði, þar með talið um fyrirhugaða lagasetningu. Þá geta Alþingi og stofnanir þess óskað eftir ráðgjöf Siðfræðistofnunar. Greiðslur úr ríkissjóði fyrir verkið munu nema 10 m.kr. árlega.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×