Benzema skaut Evrópumeisturunum upp í þriðja sætið

Bjarni Þórarinn Hallfreðsson skrifar
Benzema skoraði eina mark leiksins
Benzema skoraði eina mark leiksins vísir/getty
Real Madrid komst upp í þriðja sæti spænsku úrvalsdeildarinnar eftir 1-0 heimasigur á Rayo Vallecano í kvöld.



Real madrid fékk Rayo Vallecano í heimsókn á Santiago Bernabeu. Liðið beið afhroð á sama stað í miðri viku gegn Íslendingaliðinu CSKA Moskvu í Meistaradeildinni.



Var því pressa á að Evrópumeistararnir kæmu til baka.



Real Madrid byrjaði af krafti og komst yfir strax á 13. mínútu með marki frá Karim Benzema.



Mark Benzema reyndist vera það eina í leiknum og mikilvæg þrjú stig í hús hjá Evrópumeisturunum.



Með sigrinum er Real Madrid komið í þriðja sæti, en liðið er tveimur stigum á eftir erkifjendum sínum, Barcelona og Atletico Madrid. Barcelona á leik til góða.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira