West Ham með sinn fjórða sigurleik í röð

Bjarni Þórarinn Hallfreðsson skrifar
Snodgrass kom West Ham á bragðið
Snodgrass kom West Ham á bragðið vísir/getty
West Ham vann sinn fjórða sigur í röð eftir nokkuð þægilegan sigur á Fulham.



Robert Snodgrass kom West Ham yfir á 17. mínútu leiksins með mjög góðu skoti fyrir utan teig.



Michail Antonio tvöfaldaði svo forystu West Ham eftir tæplega hálftíma leik með skalla eftir mistök í vörn Fulham.



Ekki var skorað meira í leiknum, og nokkuð þægilegur sigur West Ham staðreynd. West Ham er nú komið upp í 9. sæti deildarinnar en liðið hefur verið á góðu skriði undanfarnar vikur en þetta var fjórði sigurleikur liðsins í röð.



Fulham er hins vegar í basli á botni deildarinnar.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira