Handbolti

Guðjón Valur og Alexander markahæstir í liði Rhein-Neckar Löwen

Bjarni Þórarinn Hallfreðsson skrifar
Guðjón Valur var frábær í kvöld
Guðjón Valur var frábær í kvöld vísir/getty
Guðjón Valur Sigurðsson og Alexander Petersson voru markahæstir í liði Rhein-Neckar Löwen í öruggum sigri liðsins á Hannover-Burgdorf.



Jafnt var í hálfleik 12-12 en í seinni hálfleik keyrði Löwen yfir Hannover-Burgdorf og vann að lokum sex marka sigur, 29-23.



Guðjón Valur var markahæsti leikmaður vallarins, með átta mörk, en Alexander kom næstur honum með fimm mörk.



Löwen er nú í þriðja sæti deildarinnar, á eftir Flensburg og Kiel.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×