Körfubolti

Breiðablik örugglega áfram í 8-liða úrslit Geysisbikars kvenna

Bjarni Þórarinn Hallfreðsson skrifar
Breiðablik verður í pottinum er dregið verður í 8-liða úrslit
Breiðablik verður í pottinum er dregið verður í 8-liða úrslit vísir/daníel
Breiðablik komst auðveldlega í 8-liða úrslit Geysisbikars kvenna eftir stórsigur á Tindastóli.



Ein deild er á milli liðanna, en Breiðablik leikur í Dominos-deildinni á meðan Tindastóll leikur í 1. deild.



Breiðablik leiddi í hálfleik 51-30 og í síðari hálfleik keyrðu þær yfir Tindastól, lokatölur 105-64.



Kelly Faris var stigahæst í liði Breiðabliks með 24 stig ásamt því að taka 16 fráköst. Ragnheiður Björk Einarsdóttir kom henni næst með 23 stig þá bætti Þórdís Jóna Kristjánsdóttir við 22 stigum.



Tessondra Williams varð stigahæst hjá Stólunum með 26 stig en hún tók einnig 16 fráköst.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×