Lífið

Katrín Lea ekki á meðal tuttugu efstu í Miss Universe

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Katrín Lea Elenudóttir í forkeppninni á fimmtudagskvöld.
Katrín Lea Elenudóttir í forkeppninni á fimmtudagskvöld.
Catriona Gray frá Filippseyjum vann í nótt titilinn Miss Universe. Katrín Lea Elenudóttir, fulltrúi Íslands í keppninni, komst ekki í hóp þeirra tuttugu efstu í keppninni.

Catriona Gray, Miss Universe 2018.
Hún var því í raun ekki á meðal keppenda í aðalkeppninni sem fram fór í Bangkok í Tælandi í nótt þar sem aðeins þær tuttugu efstu komu til greina sem Miss Universe. Þær voru valdar í nótt að undangenginni forkeppni á fimmtudagskvöld.

Í öðru sæti var Tamaryn Green frá Suður-Afríku og í  því þriðja Sthefani Gutiérrez frá Venesúela.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×