Viðskipti erlent

Ákæra Goldman Sachs vegna spillingarmáls í Malasíu

Kjartan Kjartansson skrifar
Risasnekkja sem lagt var hald á í rannsókn á spillingu í kringum fjárfestingasjóðinn 1MDB í Malasíu.
Risasnekkja sem lagt var hald á í rannsókn á spillingu í kringum fjárfestingasjóðinn 1MDB í Malasíu. Vísir/EPA
Bandaríski bankinn Goldman Sachs og tveir fyrrverandi starfsmenn hans hafa verið ákærðir í tengslum við umfangsmikið spillingar- og peningaþvættismál í Malasíu. Forsvarsmenn bankans segja að ákærurnar misráðnar og að hann muni verjast þeim af krafti.

Ákærurnar varða hneyksli í kringum opinberan fjárfestingasjóð sem nefnist 1MDB. Hneykslið átti þátt í að fella Najib Razak, fyrrverandi forsætisráðherra, í kosningum fyrr á þessu ári. Hann er sakaður um að hafa dregið sér um 700 milljónir dollara úr sjóðnum sem hann setti á fót.

Goldman Sachs hefur verið sakaður um að taka þátt í að afla fjár í sjóðinn og er til rannsóknar í að minnsta kosti sex löndum, að sögn breska ríkisútvarpsins BBC. Auk bankans sjálfs eru Tim Leissner, fyrrum stjórnarformaður bankans í Suðaustur-Asíu, og Roger Ng, framkvæmdastjóri, ákærðir í Malasíu. Einn fyrrverandi starfsmaður 1MDB hefur einnig verið ákærður.

Ríkissaksóknari Malasíu segir að ákærurnar tengist þremur skuldabréfum sem dótturfélög 1MDB gáfu út sem Goldman Sachs kom í kring og skrifaði upp á.

Leissner og Ng hafa einnig verið ákærðir í Bandaríkjunum vegna 1MDB. Leissner hefur játað að hafa lagt á ráðin um peningaþvætti og brot á lögum gegn mútuþægni. Tvímenningarnir voru ákærðir fyrir að hafa mútað opinberum embættismönnum til að afla 1MDB verkefni sem Goldman Sachs hagnaðist á.

Bandarískir saksóknarar fullyrða að milljarðar dollara hafi horfið úr sjóðnum til að fjármagna kaup á listaverkum, fasteignum, einkaþotu og í einu tilfelli til að fjármagna Hollywood-kvikmyndina „Úlfurinn á Wall Street“.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×