Lífið

Fluttu um borð í bát fyrir tólf árum og það bjargaði sambandinu

Stefán Árni Pálsson skrifar
Katy og Tom hafa verið hamingjusöm síðan að báturinn kom inn í líf þeirra.
Katy og Tom hafa verið hamingjusöm síðan að báturinn kom inn í líf þeirra.
Katy og Tom hafa búið saman á bát í London í tólf ár. Í myndbandi sem Mashable birtir má heyra sögu þeirra hjóna en þau hafa verið gift í tíu ár.

Katy segist hafa verið mjög óhamingjusöm í venjulegu húsnæði á sínum tíma og hafi ákvörðunin að flytja yfir í bát bjargað sambandinu.

Í dag eiga hjónin tvö börn sem hafa aldrei þekkt neitt annað en að búa um borð í bát.

Ekki fyrir svo löngu tóku hjónin ákvörðun um að stækka bátinn og þurfti þá að skera hann í sundur og var bætt við töluverðu rými.

Hér að neðan má sjá hvernig þessi fjölskylda lifir lífinu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×