Enski boltinn

Messan: Liverpool komið með breidd til að vinna titilinn

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
Hjörvar Hafliðason
Hjörvar Hafliðason s2 sport
Liverpool átti ekki í miklum vandræðum með að vinna erkifjendur sína í Manchester United í gær. Hjörvar Hafliðason sagði breidd Liverpool hafa komið sér á óvart.

Hjörvar var annar sérfræðinga Messunnar á Stöð 2 Sport í gærkvöld og var stórleikurinn að sjálfsögðu til umræðu þar.

„Það sem hefur komið mér mest á óvart við hversu tilbúnir Liverpool mættu inn í þetta leiktímabil er þessi gríðarlega breidd á liðinu,“ sagði Hjörvar.

Mikil meiðslavandræði hrjáðu Jurgen Klopp um helgina en það kom ekki að sök.

„Stóra spurningin við hvort þeir gætu tekið titilinn frekar en City var alltaf breiddin. Það er frábær breidd í þessu Liverpool-liði, það er alveg ljóst,“ sagði Hjörvar.

Alla umræðuna má sjá hér að neðan.



Klippa: Messan: Liverpool er komið með breiddina til að vinna titil



Fleiri fréttir

Sjá meira


×