Körfubolti

Curry í fimmtán þúsund stigin og Durant upp fyrir Larry Bird

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Stephen Curry fagnar tímamótakörfu sinni í nótt.
Stephen Curry fagnar tímamótakörfu sinni í nótt. Vísir/Getty
Stephen Curry og Kevin Durant náðu báðir flottum tímamótum í öruggum sigri Golden State Warriors í NBA-deildinni í körfubolta í nótt. Russell Westbrook var þrennu og James Harden skoraði 47 stig í sigrum sinna liða.





Kevin Durant skoraði 23 stig þegar Golden State Warriors vann 110-93 heimasigur á Memphis Grizzlies. Durant komst fyrir vikið upp fyrir Larry Bird á stigalista NBA-deildarinnar og er nú kominn upp í 33. sætið. Durant fær næg tækifæri til að hækka sig verulega á listanum enda ennþá bara þrítugur.









Stephen Curry var með 20 stig fyrir Golden State og náði líka tímamótum þegar hann skoraði sitt fimmtán þúsundasta stig í NBA en hann er aðeins fimmti leikmaður í sögu Warriors sem nær því. Hinir eru Wilt Chamberlain (17.783 stig), Rick Barry (16.447), Paul Arizin Arizin (16.266) og Chris Mullin (16.235).

Golden State lagði grunninn að sigrinum með því að vinna annan leikhlutann 31-16 og komast 23 stigum yfir fyrir hálfleik. Curry náði einmitt fimmtán þúsundasta stiginu með þriggja stiga körfu í hraðaupphlaupi í öðrum leikhlutanum. Steve Kerr leyfði sér að hvíla lykilmenn í seinni hálfleiknum en framundan eru átta leikir hjá Golden State áður en árið er á enda.









Klay Thompson skoraði 16 stig fyrir Golden State og Svíinn Jonas Jerebko kom líka með 16 stig inn af bekknum. Marc Gasol var með 15 stig fyrir Memphis Grizzlies sem tapaði þriðja leiknum í röð og þeim fimmta af síðustu sex.

Russell Westbrook var með þrennu í 121-96 sigri Oklahoma City Thunder á Chicago Bulls en hann skilaði 13 stigum, 16 fráköst og 11 stoðsendingum. Þetta er 111. þrenna Westbrook á NBA-ferlinum.

Paul George skoraði 16 af 24 stigum sínum á fimm mínútna kafla í fyrri hálfleik sem Thunder-liðið vann 23-7 og komst í 64-44 fyrir hálfleik. Lauri Markkanen og Bobby Portis skoruðu báðir 16 stig fyrir Chicago og Finninn Lauri var einnig með 15 fráköst.





Giannis Antetokounmpo átti enn einn stórleikinn þegar Milwaukee Bucks vann 107-104 útisigur á Detroit Pistons. Giannis endaði með 32 stig og 12 fráköst en þrenna Blake Griffin (19 stig, 11 stoðsendingar, 10 fráköst) dugði ekki Detroit.

Griffin fékk tækifæri til að koma leiknum í framlengingu en klikkaði á tveimur þriggja stiga skotum á síðustu fjórtán sekúndunum.

James Harden skoraði 47 stig í 102-97 sigri Houston Rockets á Utah Jazz en þetta var fjórði sigurleikur Houston liðsins í röð. Harden hitti úr 15 af 16 vítskotum sínum og var auk stiganna með 6 fráköst, 5 stoðsendingar og 5 stolna bolta.

Það hefur lítið gengið upp hjá Houston liðinu en Harden hefur farið fyrir liðinu í þessarri fjögurra leikja sigurgöngu en í þeim er hann líka með 50 stiga leik og svo tvær þrennur. Þetta var sjötti 40 stiga leikur Harden á tímabilinu.





Devin Booker skoraði 38 stig í 128-110 sigri Phoenix Suns á New York Knicks í Madison Sqaure Garden.  T.J. Warren skoraði 17 af 26 stigum sínum í þriðja leikhlutanum sem Phoenix-liðið vann 41-17. Þetta er þriðji sigur Phoenix í röð eftir að hafa aðeins unnið 4 af fyrstu 28 leikjum tímabilsins.









Úrslitin í NBA-deildinni í nótt:

Golden State Warriors - Memphis Grizzlies 110-93

Los Angeles Clippers - Portland Trail Blazers 127-131

San Antonio Spurs - Philadelphia 76ers    123-96    

Houston Rockets - Utah Jazz    102-97    

Minnesota Timberwolves - Sacramento Kings    132-105    

Oklahoma City Thunder - Chicago Bulls    121-96    

New York Knicks - Phoenix Suns    110-128    

Detroit Pistons - Milwaukee Bucks    104-107   

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×