Sport

Alþjóðlegt CrossFit mót haldið á Íslandi í maí

Kristinn Páll Teitsson skrifar
Þrjár helstu CrossFit konur landsins, Sara, Katrín Tanja og Annie Mist.
Þrjár helstu CrossFit konur landsins, Sara, Katrín Tanja og Annie Mist. Fréttablaðið/Eyþór
Á Íslandi fer fram stórt alþjóðlegt mót í CrossFit í byrjun maí sem er hluti af nýju mótafyrirkomulagi CrossFit í aðdraganda heimsleikanna í ágúst næstkomandi.

Mótið er hluti af undankeppninni og fá sigurvegararnir í karla- og kvennaflokki þátttökurétt á Heimsleikunum en þetta staðfesti Evert Víglundsson, yfirþjálfari og einn eigenda CrossFit Reykjavík, í samtali við Fréttablaðið á dögunum.

Heimsleikarnir í CrossFit fara fram næsta sumar í þrettánda sinn en undankeppnin er með breyttu fyrirkomulagi í ár. Hér áður var fyrsta stigið að keppa í undankeppni (e. The Open) og þau bestu í karla- og kvennaflokki komust á síðasta stig undankeppninnar (e. Regionals).

Þá þurftu Íslendingar ýmist að keppa á lokastigi undankeppninnar í Evrópu eða Norður-Ameríku þar sem aðeins fimm manns komust áfram í hvert sinn og fjörutíu manns komust inn á leikana en í ár eru fjölbreytilegri möguleikar fyrir hendi sem leysa af Regionals.

Alls fara sextán mót fram í aðdraganda Heimsleikanna og hófst það með móti í Sameinuðu arabísku furstadæmunum um helgina. Sigurvegararnir í karla- og kvennaflokki ásamt sigurliðinu í liðakeppninni öðlast þátttökurétt á heimsleikunum í þessum sextán mótum.

Önnur leið inn á heimsleikana sjálfa er að komast inn í gegnum undankeppnina (e. The Open) sem er opin öllum. Efstu einstaklingarnir í undankeppninni frá 164 löndunum sem eru með CrossFit-stöðvar í heiminum í karla- og kvennaflokki fá þátttökurétt ásamt tuttugu stigahæstu í undankeppninni sem hafa ekki tryggt sér þátttökurétt í gegnum eitt af sextán mótunum.

Eitt þessara sextán móta mun fara fram á Íslandi og sjá Evert og Annie Mist frá CrossFit Reykjavík um að skipuleggja mótið sem fer fram 3.-5. maí næstkomandi.

„Sviðsljósið verður á þessum sextán mótum í aðdraganda heimsleikanna og við erum með þrettánda mótið af sextán í byrjun maí. Ef einhver af stærstu nöfnum heimsins í CrossFit verða ekki komin inn á mótið munu þau eflaust fjölmenna hingað til að reyna að tryggja sér þátttökurétt á leikunum.“

Íslenskir þátttakendur hafa átt góðu gengi að fagna í gegnum árin á heimsleikum CrossFit þar sem barist er um titilinn hraustasti karl og kona heimsins.

Annie Mist Þórisdóttir og Katrín Tanja Davíðsdóttir hafa báðar tvívegis sigrað á leikunum og í karlaflokki náði Björgvin Karl Guðmundsson besta árangri Íslendings í keppninni þegar hann lauk keppni í þriðja sæti árið 2015.

Sara Sigmundsdóttir og Björgvin Karl komust bæði á verðlaunapall á fyrsta mótinu af sextán í mótaröðinni sem hófst um helgina en náðu þó ekki fyrsta sæti og þurfa því að gera aðra atlögu á næstu fimmtán mótum.


Tengdar fréttir

Sara: Gott að vera komin aftur

Íslenska CrossFit stjarnan Ragnheiður Sara Sigmundsdóttir stimplaði sig aftur inn meðal þeirra bestu með því að ná þriðja sæti á gríðarlega sterku CrossFit móti í Dúbaí um helgina.

Björgvin Karl: Við víkingarnir stöndum saman

"Ég er aldrei ánægður með annað sætið en geri undantekningu á því núna,“ skrifaði Björgvin Karl Guðmundsson inn á Instagram síðu sína eftir frábæra frammistöðu sína um helgina.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×