Erlent

Höfundur tónlistarinnar í Hárinu er látinn

Atli Ísleifsson skrifar
Galt MacDermot.
Galt MacDermot. Getty
Tónskáldið Galt MacDermot, höfundur tónlistarinnar í söngleiknum Hárinu, er látinn, 89 ára að aldri. Hann var einnig þekktur fyrir að hafa samið tónlistina í söngleiknum Two Gentlemen of Verona, sem byggði á samnefndu leikriti William Shakespeare.

Tónlistarferill hinn kanadísk-bandaríska MacDermot hófst snemma á sjöunda áratugnum þegar hann vann til tveggja Grammyverðlauna fyrir tónlistina í African Waltz.

Á síðustu árum öðlaðist tónlist MacDermot nýtt líf þegar hip hop tónlistarmenn á borð við Busta Rhymes og Run-D.M.C notuðust við tónlist hans í sinni.

Söngleikurinn Hárið var fyrst frumsýndur árið 1967 og var kvikmynd Milos Forman, sem byggði á söngleiknum, frumsýnd 1979. Hárið hefur nokkrum sinnum verið sett upp á Íslandi, meðal annars í Glaumbæ og Íslensku Óperunni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×