Lífið

Grýla og jólasveinarnir skúrkarnir á Netflix

Stefán Árni Pálsson skrifar
Svona kemur Grýla fyrir í þættinum.
Svona kemur Grýla fyrir í þættinum.
Netflix-þættirnir Chilling Adventures of Sabrina hafa verið að slá í gegn að undanförnu en þeir eru byggðir á þáttunum Sabrina the Teenage Witch sem hófu göngu sína árið 1996.

Sérstakur jólaþáttur fór í loftið á dögunum en þar koma íslensku jólasveinarnir og Grýla við sögu.

Grýla er norn í þættinum sem safnar litlum börnum og er alltaf að reyna stækka fjölskylduna. Íslensku jólasveinarnir fylgja henni um allt.

Erlendir miðlar hafa fjallað um Grýlu í kjölfar þáttarins og kemur þar fram að Grýla sé íslensk.

Hér að neðan má sjá stiklu úr jólaþættinum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×