Körfubolti

Valur og Stjarnan heimsækja bikarmeistarana

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
Tindastóll varð bikarmeistari í fyrsta sinn í janúar
Tindastóll varð bikarmeistari í fyrsta sinn í janúar Vísir/Hanna
Bikarmeistarar Keflavíkur fá Val í heimsókn í 8-liða úrslitum Geysisbikars kvenna. Stjarnan sækir bikarmeistara Tindastóls heim norður á Sauðárkrók.

Dregið var í 8-liða úrslitin í Laugardalnum í dag. Eitt fyrstu deildar lið var í pottinum bæði karla og kvenna megin. Vestri fer til Njarðvíkur og ÍR mætir Breiðabliki í Smáranum.

Þrjú lið eiga fulltrúa í bæði karla og kvennakeppninni, það eru Stjarnan, Skallagrímur og ÍR. 



8-liða úrslit kvenna

Snæfell-Haukar

Stjarnan-Skallagrímur

Breiðablik-ÍR

Keflavík-Valur

8-liða úrslit karla

ÍR-Skallagrímur

Njarðvík-Vestri

Tindastóll-Stjarnan

KR-Grindavík

8-liða úrslitin eru á dagskrá 20. - 21. janúar og úrslitavikan verður svo um miðjan febrúar. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×